Fara beint í efni
Michelsen 1909
Skip to main content
Rolex úr

Rolex þjónustuferli hjá Michelsen

Allir opinberir söluaðilar Rolex og samstarfsaðilar Rolex hafa heimild til að taka við Rolex úrinu þínu til að þjónusta það. Starfsmaður skráir niður allar beiðnir frá þér við móttöku á úrinu þínu. Síðan er úrið sent til úrsmiðs.

Rolex þjónustuferli

Mat á úrinu

Úrsmiður skoðar úrið þitt vandlega og áætlar hvaða vinnu þarf að framkvæma á því. Þegar verkáætlunin hefur verið samþykkt byrjar viðgerðin.

Rolex úr

Undirbúningur fyrir viðgerð

Gangverkið með skífu og vísum er tekið úr kassanum. Keðjan hefur þegar verið tekin af. Gangverkið, kassinn og keðjan fara í gegnum ólíka þjónustun áður en þau eru sett aftur saman í lok ferlisins.

Rolex úr

Gangverkið tekið í sundur

Gangverkið er tekið alveg í sundur og allir partarnir eru skoðaðir vandlega. Skipt er um alla parta sem uppfylla ekki lengur kröfur Rolex.

Rolex úr

Partarnir þrifnir

Hver partur er þrifinn í úthljóðsbaði til að fjarlægja öll óhreinindi.

Rolex úr

Gangverkið sett saman og smurt

Hreinu partarnir eru þurrkaðir og síðan er gangverkið sett aftur saman og smurt. Úrsmiðurinn gerir fyrstu stillingarnar á nákvæmni gangverksins samkvæmt viðmiðum Rolex.

Rolex úr

Farið yfir úrkassan og keðjuna

Úrkassinn er tekinn alveg í sundur, og miðkassinn, hringurinn, úrbakið og keðjan eru pússuð aftur eða satínfáguð eftir því hver upprunaleg áferð þeirra var. Þessar nákvæmu aðgerðir krefjast mikillar natni og færni.

Rolex úr

Úrkassinn settur saman

Þegar búið er að þrífa og pússa hluta úrkassans eru þeir settir aftur saman og innsiglin endurnýjuð. Vatnsþéttni úrkassans er prófuð.

Rolex úr

Gangverkið sett aftur í úrkassann

Gangverkið, með skífunni og vísunum settum á aftur, er sett aftur í kassann eftir að úrsmiðurinn hefur gert ítarlegar tæknilegar prófanir og útlitsskoðun á öllum þessum hlutum.

Rolex úr

Nákvæmnispróf

Þegar búið er að setja gangverkið aftur í úrkassann mælir úrsmiðurinn nákvæmni þess aftur og gerir nauðsynlegar lokastillingar á því svo það uppfylli kröfur Rolex. Síðan er úrkassanum lokað og úrið þarf að fara í gegnum eitt Rolex próf enn sem tekur að minnsta kosti 24 klukkustundir, til að mæla nákvæmni gangverksins yfir lengri tíma.

Rolex úr

Vatnsheldnipróf

Úrið er þrýstingsprófað til að athuga hvort það sé vatnsþétt. Síðan er keðjan fest aftur við úrkassann.

Rolex úr

Lokaathugun

Nú er armbandsúrið þitt tilbúið fyrir lokaathugun þar sem úrsmiðurinn gengur úr skugga um að úrið virki fullkomlega og að útlit þess sé óaðfinnanlegt.

Rolex úr

Úrinu skilað

Við lok þjónustunnar er úrinu skilað til þín í hlífðarpoka ásamt alþjóðlegri tveggja ára ábyrgð á varahlutum og vinnu.

Rolex úr

Fyrsta flokks þjónusta

Rolex vill kappkosta að bjóða þér upp á viðgerðarþjónustu í hæsta gæðaflokki. Þökk sé háum gæðastöðlum og sérkunnáttu úrsmiða okkar getur Rolex úrið þitt haldið áfram að virka með einstökum áreiðanleika og fegurð.

Rolex úr
Rolex úr

Halda áfram að skoða

Showing page 1 of 1