Fara beint í efni
Michelsen 1909
Skip to main content
Rolex úr

Rolex úraþjónusta og viðgerðir hjá Michelsen

Rolex eru hönnuð og byggð til að endast. Í hverju skrefi hönnunar og framleiðslu á Rolex, allt frá fyrstu gerð og þar til það kemur úr framleiðslu, verður að uppfylla eitt grundvallarskilyrði: gæði. Þar af leiðandi eru engin takmörk fyrir því hversu lengi Rolex úr getur gengið, verið arfleitt frá einni kynslóð til annarrar og lifað fjölmörgum lífum.

Þjónustun á Rolex úrinu þínu hjá Michelsen

Þú getur fengið aðgang að úrsmiðum sem hafa fengið sérstaka þjálfun í að þjónusta Rolex úr, hjá Michelsen. Við förum eftir þjónustuferli Rolex sem er hannað til að tryggja að öll úr sem eru afhent frá Rolex verkstæðum uppfylli upprunalega virkni og og útlitslýsingu sína.

Rolex úr
Rolex úr

Viðurkenndur þjónustuaðili

Úrsmiðirnir á verkstæði okkar hafa hlotið þjálfun samkvæmt ströngustu gæðakröfum og þurfa að ganga í gegnum reglulegt mat frá Rolex. Þú getur treyst Michelsen til að framkvæma allar gerðir þjónustu fyrir Rolex úrið þitt, hvort sem það er að breyta lengdinni á keðjunni eða gagnger yfirferð á úrinu.

Rolex úr

Þjónustuferli Rolex

Þjónustuferli Rolex er hannað til að tryggja að öll úr sem eru afhent frá Rolex verkstæði uppfylli upprunalega virkni og útlitslýsingu sína. Farið er gaumgæfilega yfir hvert gangverk og gert er vandlega við alla kassa og keðjur til að þau nái fyrri fegurð. Nákvæmni gangverksins og vatnsþéttni gangast undir strangar prófanir til að tryggja gæðin og áreiðanleikann sem má búast við af Rolex úri.

Nánar
Rolex úr

Tveggja ára þjónustuábyrgð

Eftir að Rolex úrið þitt hefur fengið fulla þjónustun, fær það tveggja ára þjónustuábyrgð. Þessi ábyrgð gildir ekki fyrir skemmdir eða slit sem verða af völdum slyss eða slæmrar meðferðar á úrinu. Þjónustuábyrgðin fellur úr gildi ef utanaðkomandi aðili sem er ekki viðurkenndur söluaðili Rolex á við úrið, eða ef notaðir eru varahlutir eða fylgihlutir sem ekki eru seldir af Rolex.

Rolex úr
Rolex úr

Halda áfram að skoða

Showing page 1 of 1