Rolex
GMT-Master II
Oyster, 40 mm, Oystersteel stál
M126720VTNR-0001

Rolex
Oyster, 40 mm, Oystersteel stál
M126720VTNR-0001

Þetta módel er með svarta skífu og tvílitan Cerachrom hringinnlegg úr grænu og svörtu keramík. Til viðbótar við hefðbundna klukkustunda-, mínútu- og sekúnduvísa er GMT-Master II með vísi með ör sem snýst um skífuna einu sinni á sólarhring, sem og 24 stunda hring sem snýst í báðar áttir. Hin sérlega litaði 24 stunda vísir birtir tilvísunartímann „heima“ á fyrsta tímabelti sem hægt er að lesa á kvörðunum hringsins. Staðartíma ferðamannsins má auðveldlega stilla með því að „hoppa“ á milli klukkustunda, þökk sé snjöllu fyrirkomulagi sem stjórnað er með trekkjara: Hægt er að stilla klukkustundarvísinn áfram eða aftur, óháð mínútu- og sekúnduvísum. Þetta gerir ferðamönnum kleift að aðlagast nýju tímabelti sínu án þess að slíkt hafi áhrif á nákvæma tímamælingu. Cerachrom hringinnleggið er með einstaka litasamsetningu: svartan og grænan lit sem er eingöngu fyrir þessa útgáfu.
Eins og með öll Rolex Professional úr veitir GMT-Master II framúrskarandi læsileika við allar kringumstæður, einkum í myrkri, þökk sé Chromalight-lýsingunni. Breiðu vísarnir og klukkustundamerki með einfalda lögun - þríhyrningar, hringir, ferhyrningar - eru fyllt með ljómandi efni sem gefur frá sér langvarandi bjarma.Í þessari frumlegu útgáfu úrsins eru krónan og trekkjaravörnin vinstra megin á úrakassanum. Glugginn fyrir dagsetninguna og Cyclops-stækkunarlinsan hafa einnig færst til og eru núna við tölustafinn 9.
Rolex notar Oystersteel í kössum stálúra sinna. Oystersteel er sérstaklega þróað af vörumerkinu og tilheyrir 904L stálfjölskyldunni, málmblöndum sem oftast eru notaðar í hátækni- og í geim- og efnaiðnaði þar sem hámarksþol gegn tæringu er nauðsynlegt. Oystersteel er með mikið þol, býður upp á framúrskarandi áferð eftir slípun og viðheldur fegurð sinni jafnvel í erfiðustu umhverfum.
Öll Rolex úr eru samsett í höndunum þar sem áhersla er lögð á að tryggja framúrskarandi gæði. Strangir staðlar Rolex takmarka framleiðslugetu fyrirtækisins og stundum kann því eftirspurnin eftir Rolex úrum að vera meiri en framleiðslugetan.
Því kann framboð ákveðinna módela að vera takmarkað. Ný Rolex úr eru eingöngu seld hjá opinberum söluaðilum Rolex en þeir fá sendingar með reglubundnum hætti og hafa umsjón sjálfir með úthlutun og sölu úra til viðskiptavina.
Michelsen er stoltur meðlimur í alþjóðlegu neti opinberra söluaðila Rolex og getur veitt upplýsingar um framboð á Rolex úrum.
Use Enter or Space to expand or collapse sections. Use arrow keys to navigate between sections.

Takk fyrir sýndan áhuga þinn á Rolex úrum. Skrifaðu skilaboðin þín og við munum senda þér svar fljótlega