Fara beint í efni
Skip to main content
  • GMT-Master II

Rolex

GMT-Master II

Oyster, 40 mm, hvítagull

RMC: M126729VTNR-0001

7.960.000 kr.

Watch image gallery

Watch image gallery

Viewing image 1 of 4

  • GMT-Master II - Image 1

Rolex International Guarantee card in green leather holder

Specifications

Módel týpa
126729VTNR
Ól / keðja
Oyster, þriggja hluta gegnheilir hlekkir
Úrkassi
Oyster, 40 mm, hvítagull
Gangverk
Stöðugt, vélrænt, sjálftrekkjandi, GMT aðgerð
Vatnsvörn
Vatnshelt við 100 metra / 330 fet
Verkgerð
3285, framleiðandi Rolex
Hringur
24 stunda hringur sem snýst. Tvílitt grænt og svart Cerachrom innlegg úr keramik, mótaðir tölustafir og kvarðanir
Hleðsluforði
U.þ.b. 70 klukkustundir
Skífa
Grænt keramík
Vottun
Superlative Chronometer (COSC + Rolex vottun eftir umgjörð)

24 stunda hringur sem snýst

Þetta módel er með græna keramík skífu og tvílitan Cerachrom hringinnlegg úr grænu og svörtu keramík. Til viðbótar við hefðbundna klukkustunda-, mínútu- og sekúnduvísa er GMT-Master II með vísi með ör sem snýst um skífuna einu sinni á sólarhring, sem og 24 stunda hring sem snýst í báðar áttir. Hin sérlega litaði 24 stunda vísir birtir tilvísunartímann „heima“ á fyrsta tímabelti sem hægt er að lesa á kvörðunum hringsins. Staðartíma ferðamannsins má auðveldlega stilla með því að „hoppa“ á milli klukkustunda, þökk sé snjöllu fyrirkomulagi sem stjórnað er með trekkjara: Hægt er að stilla klukkustundarvísinn áfram eða aftur, óháð mínútu- og sekúnduvísum. Þetta gerir ferðamönnum kleift að aðlagast nýju tímabelti sínu án þess að slíkt hafi áhrif á nákvæma tímamælingu. Cerachrom hringinnleggið er með einstaka litasamsetningu: svartan og grænan lit sem er eingöngu fyrir þessa útgáfu.

24 stunda hringur sem snýst

Græn keramíkskífa

Cerachrom skífan er búin til á sama hátt og skífur úr náttúrulegum steini, með því að festa disk úr efninu ofan á látúnsplötu. Hún er í sama lit og neðri helmingurinn á tvílitaða græna og svarta Cerachrom hringinnlegginu sem rammar inn framhlið úrsins. Þetta er fyrsta Cerachrom skífan á Rolex úri. Á þessu úri er krónan og trekkjaravörnin vinstra megin á úrkassanum. Glugginn fyrir dagsetninguna og Cyclops-stækkunarlinsan hafa einnig færst til og eru núna við tölustafinn 9.

Græn keramíkskífa

18 kt hvítagull

Með því að reka eigin málmsteypu býr Rolex yfir framúrskarandi getu til að steypa hágæða 18 kt gullblöndur. Samkvæmt hlutfalli af silfri, kopar, platínu eða palladíum sem bætt er við fást mismunandi tegundir af 18 kt gulli: gult, bleikt eða hvítt. Þetta fer aðeins fram með hreinustu málmum og eru þeir skoðaðir vandlega af rannsóknarstofunni á staðnum þar sem notast er við nýjustu tækni. Þetta er gert áður en gullið er mótað og lagað þar sem sama áhersla á nákvæmni er viðhöfð. Skuldbinding Rolex við ágæti hefst við upptökin.

18 kt hvítagull

Framboð módela

Öll Rolex úr eru samsett í höndunum þar sem áhersla er lögð á að tryggja framúrskarandi gæði. Strangir staðlar Rolex takmarka framleiðslugetu fyrirtækisins og stundum kann því eftirspurnin eftir Rolex úrum að vera meiri en framleiðslugetan.

Því kann framboð ákveðinna módela að vera takmarkað. Ný Rolex úr eru eingöngu seld hjá opinberum söluaðilum Rolex en þeir fá sendingar með reglubundnum hætti og hafa umsjón sjálfir með úthlutun og sölu úra til viðskiptavina.

Michelsen er stoltur meðlimur í alþjóðlegu neti opinberra söluaðila Rolex og getur veitt upplýsingar um framboð á Rolex úrum.

Hafðu samband

Use Enter or Space to expand or collapse sections. Use arrow keys to navigate between sections.

Skref 1 af 3: Skrifaðu skilaboð

Model Contact

Senda skilaboð: Skrifaðu skilaboð

Takk fyrir sýndan áhuga þinn á Rolex úrum. Skrifaðu skilaboðin þín og við munum senda þér svar fljótlega.

Halda áfram að skoða