Rolex
Yacht-Master 42
Oyster, 42 mm, hvítagull
M226659-0002

Rolex
Oyster, 42 mm, hvítagull
M226659-0002

Nýja Oysterflex ól Yacht-Master, þróuð af Rolex og nýtur einkaleyfis, er sportlegur valkostur í stað keðju. Ólin er fest við úrkassann og Oysterlock öryggislás með málmblaði úr sveigjanlegri málmblöndu títans og nikkels. Blaðið er yfirmótað með hágæða svörtu teygjuefni sem þolir einkar vel áhrif frá umhverfinu, er mjög endingargott og fer vel fyrir notanda úrsins. Til að auka þægindin er innri hluti Oysterflex ólarinnar búin lengdarbólstrunarkerfi sem nýtur einkaleyfis og kemur jafnvægi á úrið á úlnliðnum. Það er með Oysterlock öryggislás. Einnig er það með Rolex Glidelock-lás með lengingu sem var hannaður af fyrirtækinu og nýtur einkaleyfis. Þetta frumlega tennta kerfi sem er ísett undir klemmunni gerir kleift að fínstilla lengd ólarinnar um allt 15 mm í um það bil 2,5 mm þrepum, án þess að þurfi að nota áhöld.
Með því að reka eigin málmsteypu býr Rolex yfir framúrskarandi getu til að steypa hágæða 18 kt gullblöndur. Samkvæmt hlutfalli af silfri, kopar, platínu eða palladíum sem bætt er við fást mismunandi tegundir af 18 kt gulli: gult, bleikt eða hvítt. Þetta fer aðeins fram með hreinustu málmum og eru þeir skoðaðir vandlega af rannsóknarstofunni á staðnum þar sem notast er við nýjustu tækni. Þetta er gert áður en gullið er mótað og lagað þar sem sama áhersla á nákvæmni er viðhöfð. Skuldbinding Rolex við ágæti hefst við upptökin.
Yacht-Master er með 60 mínútna hring sem snýst í báðar áttir og sem er gerður eingöngu úr eðalmálmum (Everose gulli eða platínu) eða með Cerachrom innleggi úr hátækni keramiki, eftir því hvert módel úrsins er. Upphækkaðir, fægðir tölustafir og kvarðanir eru áberandi við mattan, sandblásinn bakgrunninn. Þessi hagnýti hringur – sem gerir notandanum til dæmis kleift að reikna út siglingatímann á milli tveggja bauja– er einnig lykilþáttur í einkennandi útliti tegundarinnar.
Öll Rolex úr eru samsett í höndunum þar sem áhersla er lögð á að tryggja framúrskarandi gæði. Strangir staðlar Rolex takmarka framleiðslugetu fyrirtækisins og stundum kann því eftirspurnin eftir Rolex úrum að vera meiri en framleiðslugetan.
Því kann framboð ákveðinna módela að vera takmarkað. Ný Rolex úr eru eingöngu seld hjá opinberum söluaðilum Rolex en þeir fá sendingar með reglubundnum hætti og hafa umsjón sjálfir með úthlutun og sölu úra til viðskiptavina.
Michelsen er stoltur meðlimur í alþjóðlegu neti opinberra söluaðila Rolex og getur veitt upplýsingar um framboð á Rolex úrum.
Use Enter or Space to expand or collapse sections. Use arrow keys to navigate between sections.

Takk fyrir sýndan áhuga þinn á Rolex úrum. Skrifaðu skilaboðin þín og við munum senda þér svar fljótlega