Fara beint í efni
Skip to main content
  • Air-King

Rolex

Air-King

Oyster, 40 mm, Oystersteel stál

RMC: M126900-0001

1.240.000 kr.

Watch image gallery

Watch image gallery

Viewing image 1 of 4

  • Air-King - Image 1

Rolex International Guarantee card in green leather holder

Specifications

Módel týpa
126900
Ól / keðja
Oyster, þriggja hluta gegnheilir hlekkir
Úrkassi
Oyster, 40 mm, Oystersteel stál
Gangverk
Stöðugt, vélrænt, sjálftrekkjandi
Vatnsvörn
Vatnshelt við 100 metra / 330 fet
Verkgerð
3230, framleiðandi Rolex
Hringur
Sléttur
Hleðsluforði
U.þ.b. 70 klukkustundir
Skífa
Svört
Vottun
Superlative Chronometer (COSC + Rolex vottun eftir umgjörð)

Svört skífa

Air-King skífan er með einkennandi svarta skífu með samsetningu af stórum 3, 6 og 9 tölustöfum sem merkja klukkustundirnar og áberandi mínútuskala fyrir álestur tíma á ferðum. Hún er með heitið Air-King með sömu áletrun og hönnuð var sérstaklega fyrir tegundina á 6. áratug síðustu aldar.

Svört skífa

Oystersteel

Rolex notar Oystersteel í kössum stálúra sinna. Oystersteel er sérstaklega þróað af vörumerkinu og tilheyrir 904L stálfjölskyldunni, málmblöndum sem oftast eru notaðar í hátækni- og í geim- og efnaiðnaði þar sem hámarksþol gegn tæringu er nauðsynlegt. Oystersteel er með mikið þol, býður upp á framúrskarandi áferð eftir slípun og viðheldur fegurð sinni jafnvel í erfiðustu umhverfum.

Oystersteel

Oyster keðjan

Oyster keðjan er fullkomin samsetning forms og virkni, fagurfræði og tækni. Hún er hönnuð til að vera bæði sterk og þægileg. Hún er með Oysterlock lás sem leggst saman og kemur í veg fyrir opnun fyrir slysni og þægilegum Easylink-stækkunarhlekk sem fæst eingöngu hjá Rolex. Þetta snjalla kerfi gerir notandanum kleift að lengja keðjuna um u.þ.b. 5 mm, sem veitir viðbótarþægindi við allar kringumstæður.

Oyster keðjan

Framboð módela

Öll Rolex úr eru samsett í höndunum þar sem áhersla er lögð á að tryggja framúrskarandi gæði. Strangir staðlar Rolex takmarka framleiðslugetu fyrirtækisins og stundum kann því eftirspurnin eftir Rolex úrum að vera meiri en framleiðslugetan.

Því kann framboð ákveðinna módela að vera takmarkað. Ný Rolex úr eru eingöngu seld hjá opinberum söluaðilum Rolex en þeir fá sendingar með reglubundnum hætti og hafa umsjón sjálfir með úthlutun og sölu úra til viðskiptavina.

Michelsen er stoltur meðlimur í alþjóðlegu neti opinberra söluaðila Rolex og getur veitt upplýsingar um framboð á Rolex úrum.

Hafðu samband

Use Enter or Space to expand or collapse sections. Use arrow keys to navigate between sections.

Skref 1 af 3: Skrifaðu skilaboð

Model Contact

Senda skilaboð: Skrifaðu skilaboð

Takk fyrir sýndan áhuga þinn á Rolex úrum. Skrifaðu skilaboðin þín og við munum senda þér svar fljótlega.

Rolex Air-King vörulínan

Halda áfram að skoða