Fara beint í efni
Michelsen 1909
Skip to main content
Air King

Rolex Air-King
Upp í háloftin

Oyster Perpetual Air-King heiðrar arfleifð upprunalega Oyster-úrsins í loftferðum Það hyllir frumkvöðla himinloftanna sem sóttu á ný ævintýri, fóru í leiðangra og einstök afrek þeirra lögðu grunninn að nýjum hugsjónum. Air-King er tákn fyrir einstakt sambandið á milli Rolex og loftferða á gullöld flugsins á 4. áratug síðustu aldar. Það hyllir flugmenn tímabilsins og hlutverk Oyster úranna í epískri sögu þeirra.

Introduction to Rolex

Áratugurinn eftir 1930 var tímabil ótrúlegra framfara í afköstum flugvéla sem endaði með að langflug kom til sögunnar. Margir flugmenn slógu met með Oyster á úlnliðnum. Aðrir notuðu úr frá Rolex sem tímamæli um borð, til dæmis Owen Cathcart-Jones og Ken Waller sem flaug frá London (Bretlandi) til Melbourne (Ástralíu) árið 1934 á mettíma í tveggja hreyfla De Havilland Comet.

Perpetual 1908

Einstakt útlit

Air-King er með einkennandi svarta skífu með samsetningu af stórum 3, 6 og 9 tölustöfum sem merkja klukkustundirnar og áberandi mínútukvörðun fyrir auðveldan álestur tíma á ferðum. Rolex kórónan er sýnd í gulum lit á skífunni á meðan sekúnduvísirinn og nafnið „Rolex“ eru í grænum lit sem endurspeglar einkennislit merkisins. Allt frá útgáfu úrsins árið 1958 hefur áletrunin „Air-King“ verið á úrinu sem gerir það auðþekkjanlegt.

Air-King er einstaklega auðlæsileg við allar aðstæður, jafnvel í myrkri þökk sé Chromalight lýsingunni: tölustafirnir 3, 6 og 9, þríhyrningurinn við tölustafinn 12 og vísarnir eru fylltir eða húðaðir með ljómandi efni sem gefur frá sér langvarandi bláan ljóma.

Perpetual 1908

Áreiðanleiki og virkni

Air-King er með 40 mm Oyster kassa sem er vatnsheldur við allt að 100 metra dýpi (330 fet) og er fyrirmynd styrkleika og áreiðanleika. Miðkassinn er gerður úr gegnheilu Oystersteel, sem er sérstaklega tæringarþolin málmblanda.

Air-King er með Oyster keðju úr Oystersteel í þriggja hluta hlekkjum. Þessi keðja er með Oysterlock öryggislás sem leggst saman og er hannaður af Rolex og með skráð einkaleyfi, til að koma í veg fyrir að keðjan opnist óviljandi. Einnig er hún með Easylink-stækkunarhlekk sem leyfir notandanum að lengja ólina auðveldlega um u.þ.b. 5 mm.

Perpetual 1908

Perpetual verkgerð 3230

Air-King er búið verkgerð 3230, sjálftrekkjandi vélrænu gangverki sem var þróað og er framleitt eingöngu af Rolex. Það býður upp á framúrskarandi afköst hvað varðar nákvæmni, hleðsluforða, þægindi og áreiðanleika. Þetta gangverk er með einstaka bláa Parachrom-spíralfjöður og Cronergy akkeri sem hefur skráð einkaleyfi. Hleðsluforðinn endist í um það bil 70 klukkustundir.

Perpetual 1908

Superlative Chronometer vottun

Air-King er með Superlative Chronometer vottun, rétt eins og öll úr frá Rolex. Þessi vottun sannar að öll úr sem eru send frá verkstæðum vörumerkisins hafa gengist undir röð prófana í rannsóknarstofum Rolex samkvæmt kröfum fyrirtækisins. Superlative Chronometer vottunin er sýnd með græna innsiglinu sem fylgir öllum Rolex úrum og henni fylgir fimm ára ábyrgð.

Halda áfram að skoða

Showing page 1 of 1