Rolex
Datejust 41
Oyster, 41 mm, Oystersteel stál
RMC: M126300-0005
1.370.000 kr.

Rolex
Oyster, 41 mm, Oystersteel stál
RMC: M126300-0005
1.370.000 kr.

Lakk sameinar næstum takmarkalausa litamöguleika við styrkleika og slétta áferð. Lökkunartæknin felst í því að setja sex þunn lög af lakki á grunnplötu úr látúni. Síðan er litlaust yfirlakk borið á til að gefa litnum eða litblænum dýpt og glans. Þegar yfirlakkið er þurrt er yfirborð skífunnar pússað til að magna upp litinn, síðan er skífan tilbúin fyrir prentun og applique-ásetningu.
Rolex notar Oystersteel í kössum stálúra sinna. Oystersteel er sérstaklega þróað af vörumerkinu og tilheyrir 904L stálfjölskyldunni, málmblöndum sem oftast eru notaðar í hátækni- og í geim- og efnaiðnaði þar sem hámarksþol gegn tæringu er nauðsynlegt. Oystersteel er með mikið þol, býður upp á framúrskarandi áferð eftir slípun og viðheldur fegurð sinni jafnvel í erfiðustu umhverfum.
Oyster keðjan er fullkomin samsetning forms og virkni, fagurfræði og tækni. Hún er hönnuð til að vera bæði sterk og þægileg. Hún er með Oysterclasp og þægilegan Easylink-stækkunarhlekk sem finnst eingöngu hjá Rolex. Þetta snjalla kerfi gerir notandanum kleift að auka lengd keðjunnar um u.þ.b. 5 mm, sem veitir viðbótarþægindi við allar kringumstæður.
Öll Rolex úr eru samsett í höndunum þar sem áhersla er lögð á að tryggja framúrskarandi gæði. Strangir staðlar Rolex takmarka framleiðslugetu fyrirtækisins og stundum kann því eftirspurnin eftir Rolex úrum að vera meiri en framleiðslugetan.
Því kann framboð ákveðinna módela að vera takmarkað. Ný Rolex úr eru eingöngu seld hjá opinberum söluaðilum Rolex en þeir fá sendingar með reglubundnum hætti og hafa umsjón sjálfir með úthlutun og sölu úra til viðskiptavina.
Michelsen er stoltur meðlimur í alþjóðlegu neti opinberra söluaðila Rolex og getur veitt upplýsingar um framboð á Rolex úrum.
Use Enter or Space to expand or collapse sections. Use arrow keys to navigate between sections.
Skref 1 af 3: Skrifaðu skilaboð

Takk fyrir sýndan áhuga þinn á Rolex úrum. Skrifaðu skilaboðin þín og við munum senda þér svar fljótlega.