Fara beint í efni
Michelsen 1909
Skip to main content
Perpetual 1908

Rolex Datejust
Gerðu daginn eftirminnilegan

Oyster Perpetual Datejust markaði áfanga í sögu úrsmíða sem fyrsta sjálftrekkjandi, vatnsþétta armbandsúrið sem sýndi dagsetninguna í glugga við tölustafinn 3 á skífunni.

Þessar tölur eru áminning um að þótt það séu 24 klukkustundir í hverjum degi er það undir okkur komið að gera daginn eftirminnilegan.

Introduction to Rolex

Þetta er meistaraverk úrsmíðavísindanna. Þetta er samanlagt afrek alls þess sem hefur verið náð hingað til.

Hans Wilsdorf, 1945

Allt frá upphafi hefur það haldið áfram að þróast og bjóða upp á margvíslega möguleika, ásamt því að vera tákn um sérþekkingu Rolex.

Perpetual 1908

Tákn fyrir þekkingu rolex

Datejust er fullkominn holdgervingur hins sígilda Rolex úrs og þegar það kom á markað árið 1945 sýndi það öll helstu afrekin sem vörumerkið hafði þróað fram að þeim tíma. Úrið endurspeglaði þannig sífellda leit Hans Wilsdorfs, stofnanda Rolex, að fullkomnum, en hann trúði því að framfarir í úrsmíði ættu að hvetja til framfara hjá mannkyninu. Á þessu umbreytingasama tímabili voru sviftingar í sambandi fólks við tímann. Nútímalífið gekk í takt við dagana og tengdist árstíðunum í minni mæli. Datejust býður upp á þægilegri aflestur og daglega tímastjórnun.

Introduction to Rolex

Cyclops-stækkunarlinsan
Fullkominn aflestur

Cyclops-stækkunarlinsan var gerð til að auðvelda aflestur dagsetningarinnar og er bæði fallegur og tæknilegur hluti af vörumerkinu. Þessi uppfinning frá Rolex fékk skráð einkaleyfi stuttu eftir 1950. Hún var kynnt á markaðinn í fyrsta skipti í Datejust árið 1953. Linsan stækkar dagsetninguna til að auðveldara sé að lesa hana. Hún var upphaflega úr plexigleri en hefur verið gerð úr safír frá 8. áratugnum, rétt eins og glerið í úrinu sjálfu.

Perpetual 1908

Jubilee keðjan
Þægindi og fágun

Jubilee keðjan var sérstaklega hönnuð fyrir Datejust til að fagna 40 ára afmæli Rolex árið 1945. Þessi sveigjanlega og þægilega málmkeðja er með hlekki í fimm hlutum og er óaðskiljanlegur hluti af ímynd Datejust og falleg viðbót við sígilda fágun úrsins. Datejust fæst einnig með Oyster keðju, eða President keðju með útgáfum úr eðalmálmum.

Perpetual 1908

Táknmynd úrsmíðinnar í stöðugri endurnýjun

Datejust er stöðugt að finna sjálft sig upp á nýtt. Margvíslegar endurtúlkanir sýna sérkunnáttu Rolex í skífugerð. Hægt er fá Datejust með slétta, kúpta eða rifflaða hringi, eða greypta demöntum. Með þeim hefur Datejust haldið glæsileika sínum yfir áratugina og aðlagað sig fullkomlega að persónuleika notendanna.

Perpetual 1908

Fögnum örlagaríkum dagsetningum

Datejust hefur skipað sér náttúrulegan sess sem úr örlagaríkra dagsetninga. Dag eftir dag markar skífan tengingu á milli einkalífs hvers notanda og framgangs tímans. Margir sögufrægir einstaklingar hafa borið Datejust á úlnliðnum, meðal annars Winston Churchill, Dwight D. Eisenhower og Martin Luther King. Það hefur staðist tímans tönn án þess að glata nútímalegu yfirbragði sínu.

Á meðal notenda Datejust má nefna svissneska tennisleikarann Roger Federer, pólska tennisleikarann Iga Świątek, svissnesku skíðakonuna Lara Gut-Behrami og kanadíska söngvarann Michael Bublé.

Halda áfram að skoða

Showing page 1 of 1