Fara beint í efni
Skip to main content
  • Day-Date 40

Rolex

Day-Date 40

Oyster, 40 mm, gull og demantar

RMC: M228348RBR-0002

11.340.000 kr.

Watch image gallery

Watch image gallery

Viewing image 1 of 4

  • Day-Date 40 - Image 1

Rolex International Guarantee card in green leather holder

Specifications

Módel týpa
228348RBR
Ól / keðja
President, hálfhringlaga hlekkir í þremur hlutum
Úrkassi
Oyster, 40 mm, gull og demantar
Gangverk
Stöðugt, vélrænt, sjálftrekkjandi
Vatnsvörn
Vatnshelt við 100 metra / 330 fet
Verkgerð
3255, framleiðandi Rolex
Hringur
Greypt demöntum
Hleðsluforði
U.þ.b. 70 klukkustundir
Skífa
Kampavínsgyllt greypt demöntum
Vottun
Superlative Chronometer (COSC + Rolex vottun eftir umgjörð)

Kampavínsgyllt skífa

Skífan er með 10 langskornir demantar. Geislaáferðin býr til fíngerð ljósbrot á mörgum skífum í Oyster Perpetual vörulínunni. Hún fæst með nákvæmri burstunartækni sem býr til raufar sem liggja út frá miðju skífunnar. Ljósið brotnar eins meðfram öllum raufunum og býr til einkennandi bjarma sem færist til með hreyfingum úlnliðsins. Þegar búið er að búa til geislaáferðina er skífan lituð með eðlisfræðilegri eimhúðun eða rafhúðun. Létt lakkáferð veitir skífunni lokaáferð hennar.

Kampavínsgyllt skífa

Hringur greyptur demöntum

Gimsteinarnir rata síðan til sérfræðinga fyrirtækisins í ísetningu sem búa yfir sérþekkingu við að koma þeim fyrir og kalla fram náttúrulegan ljóma steinanna. Steininum er komið fyrir, með listbragði og handverki gullsmiðs, og nákvæmlega lagður að hinum og síðan festur í gull- eða platínuumgjörð. Fyrir utan eðlislæg gæði steinanna, ýta fleiri viðmið undir fegurð ísettra gimsteina hjá Rolex: Nákvæm samstilling hæðar, stefna þeirra og staðsetning, regluleiki, styrkur og hlutföll ísetningarinnar sem og flókinn frágangur málmsmíðinnar. Glitrandi samspil sem bætir úrið og heillar þann sem gengur með það.

Hringur greyptur demöntum

18 kt gull

Með því að reka eigin málmsteypu býr Rolex yfir framúrskarandi getu til að steypa hágæða 18 kt gullblöndur. Samkvæmt hlutfalli af silfri, kopar, platínu eða palladíum sem bætt er við fást mismunandi tegundir af 18 kt gulli: gult, bleikt eða hvítt. Þetta fer aðeins fram með hreinustu málmum og eru þeir skoðaðir vandlega af rannsóknarstofunni á staðnum þar sem notast er við nýjustu tækni. Þetta er gert áður en gullið er mótað og lagað þar sem sama áhersla á nákvæmni er viðhöfð. Skuldbinding Rolex við ágæti hefst við upptökin.

18 kt gull

Framboð módela

Öll Rolex úr eru samsett í höndunum þar sem áhersla er lögð á að tryggja framúrskarandi gæði. Strangir staðlar Rolex takmarka framleiðslugetu fyrirtækisins og stundum kann því eftirspurnin eftir Rolex úrum að vera meiri en framleiðslugetan.

Því kann framboð ákveðinna módela að vera takmarkað. Ný Rolex úr eru eingöngu seld hjá opinberum söluaðilum Rolex en þeir fá sendingar með reglubundnum hætti og hafa umsjón sjálfir með úthlutun og sölu úra til viðskiptavina.

Michelsen er stoltur meðlimur í alþjóðlegu neti opinberra söluaðila Rolex og getur veitt upplýsingar um framboð á Rolex úrum.

Hafðu samband

Use Enter or Space to expand or collapse sections. Use arrow keys to navigate between sections.

Skref 1 af 3: Skrifaðu skilaboð

Model Contact

Senda skilaboð: Skrifaðu skilaboð

Takk fyrir sýndan áhuga þinn á Rolex úrum. Skrifaðu skilaboðin þín og við munum senda þér svar fljótlega.

Rolex Day-Date vörulínan

Halda áfram að skoða