
Day-Date 36
Oyster, 36 mm, hvítagull

Á miðnætti myndar Oyster Perpetual Day-Date brú á milli framtíðar og fortíðar, á milli þess sem hefur verið afrekað og þess sem er í vændum.
Allt frá árinu 1956 hefur það orðið vitni að helstu augnablikum sögunnar á úlnlið hugsjónamanna, listafólks og frumkvöðla. Þeirra sem gera hvern dag að fyrirheiti um framtíðina.

Þegar Day-Date kom á markað árið 1956 var það merkileg nýjung: það var fyrsta dagatalsúrið til að sýna fullt nafn vikudagsins ásamt dagsetningunni í sveigðum glugga við töluna 12 á skífunni, sem var mikið tæknilegt afrek á þessum tíma. Það er gert eingöngu úr eðalmálmum – 18 ct gulu gulli, hvítagulli eða Everose-gulli eða 950 platínu – og með táknrænu President keðjunni. Margar skífur á úrinu gera það að fullkomnum grunni fyrir persónulega tjáningu.

Þótt dagarnir séu þeir sömu alls staðar í heiminum eru þeir skrifaðir á ólíkan hátt eftir tungumálum. Day-Date tjáir menningarlegan uppruna notandans með því að nota öll ritunarkerfi – latneskt, arabískt, kyrillískt, hebreskt, japanskt, kínversk myndtákn og jafnvel Ge‘ez samstafa letrið sem er notað á Horni Afríku. Það fæst á 26 ólíkum tungumálum og er sannarlega alþjóðlegt og persónulegt úr.


Á miðnætti breytast dagurinn og dagsetningin samtímis í gluggunum á skífunni. Þetta afrek á sviði úrsmíði, „kraftaverkið á miðnætti“, byggist á vélbúnaði sem stjórnar tveimur diskum. Það er ávöxtur margra ára rannsókna: á árunum 1950 til 1955 skráði Rolex fjögur einkaleyfi fyrir úrverk sem sýndu dag og dagsetningu.
Í dag er Day-Date með verkgerð 3255, gangverki sem er að öllu leyti hannað og framleitt af Rolex fyrir framúrskarandi afköst.

President-keðjan var sérstaklega búin til fyrir Oyster Perpetual Day-Date árið 1956. Hún er með hlekki í þremur hlutum sem eru bara gerðir úr 18 ct gulli eða 950 platínu og er eingöngu notuð fyrir Day-Date og Datejust útgáfur úr eðalmálmum.

Margir helstu stjórnmálamenn, forstjórar og frömuðir heimsins bera Day-Date og það þekkist strax, sérstaklega á President-keðjunni, en nafn hennar ásamt fólkinu sem hefur borið úrið gaf Day-Date viðurnefnið „forsetaúrið“.
Áratugirnir líða hjá en Day-Date er ávallt á sama stað – í fremstu röð. Day-Date er úr með orðstír og ávöxtur sérkunnáttu Rolex á sviði úrsmíði. Það fylgir fólkinu sem mótar heiminn í þeirra sérgrein í gegnum skuldbindingu sína, mannlega eiginleika og skapandi snilligáfu.
Á meðal notenda Day-Date má nefna bandarísku skíðakonuna Lindsey Vonn, svissneska tennisspilarann Roger Federer, bandaríska kvikmyndagerðarmanninn Martin Scorsese og kylfingana Arnold Palmer,Jack Nicklaus og Gary Player.
