Fara beint í efni
Skip to main content
  • Deepsea Challenge

Rolex

Deepsea Challenge

Oyster, 50 mm, RLX títan

RMC: M126067-0002

4.430.000 kr.

Watch image gallery

Watch image gallery

Viewing image 1 of 4

  • Deepsea Challenge - Image 1

Rolex International Guarantee card in green leather holder

Specifications

Módel týpa
126067
Ól / keðja
Oyster, þriggja hluta gegnheilir hlekkir
Úrkassi
Oyster, 50 mm, RLX títan
Gangverk
Stöðugt, vélrænt, sjálftrekkjandi
Vatnsvörn
Vatnshelt við 11.000 metra / 36.090 fet, öryggisloki fyrir helíum
Verkgerð
3230, framleiðandi Rolex
Hringur
Hringur sem snýst í eina átt, með 60 mínútna kvörðun, rispuþolið Cerachrom innlegg úr keramík með platínuhúðaða tölustafi og kvarðanir
Hleðsluforði
U.þ.b. 70 klukkustundir
Skífa
Djúpsvört
Vottun
Superlative Chronometer (COSC + Rolex vottun eftir umgjörð)

Hringur úr keramik og ljómandi vísir

60 mínútna snúanlegur hringur í eina átt með kvörðun á Oyster, 50 mm, RLX títan gerir köfurum kleift að fylgjast á nákvæman og öruggan máta með köfuninni og þrýstingsminnkunartíma sínum. Það er búið svörtu Cerachrom hringinnleggi sem er framleitt af Rolex úr nánast rispuheldu keramiki og liturinn verður ekki fyrir áhrifum frá útfjólubláum geislum. Kvörðunin er húðuð með PVD (eðlisfræðileg eimhúðun) og er með þunnt lag af platínu. Skífan er með stór Chromalight merki fyrir klukkustundir og vísarnir eru með ljómandi efni sem gefur frá sér langvarandi bláan bjarma sem auðveldar læsileika í myrkri.

Hringur úr keramik og ljómandi vísir

Djúpsvört skífa

Chromalight-lýsing skífunnar er nýjung sem bætir sýnileika í myrkri, sem er nauðsynlegur eiginleiki fyrir kafara. Merki fyrir klukkustundir með einfalda lögun - þríhyrninga, hringi, rétthyrninga - og breiða klukkutíma- og mínútuvísa auðvelda skjótan og áreiðanlegan álestur sem kemur í veg fyrir hættu á ruglingi neðansjávar.

Djúpsvört skífa

RLX títan

RLX títan er títanblanda í flokki 5 sem Rolex valdi vegna léttleika hennar og þols gegn afmyndun og ryði. Þrátt fyrir að tilraunaúrið sem James Cameron tók með sér í Mariana-gjánna hafi þolað vel gríðarlegan þrýsting, olli það samt vandamálum fyrir notandann vegna þyngdar þess, þar sem úrið var gert úr 904L stáli. Með því að nota RLS títan til að búa til úrkassann og keðjuna fyrir Deepsea Challenge var hægt að minnka þyngdina töluvert: það er 30 prósent léttara en tilraunaúrið. Úrið er líka með sýnilega hrjúfa satínáferð á keðjunni og úrkassanum – fyrir utan trekkjaravörnina. Efstu brúnirnar á umgjörðinni eru með fláa og pússaðar til að leggja áherslu á sveigðar útlínur hennar.

RLX títan

Framboð módela

Öll Rolex úr eru samsett í höndunum þar sem áhersla er lögð á að tryggja framúrskarandi gæði. Strangir staðlar Rolex takmarka framleiðslugetu fyrirtækisins og stundum kann því eftirspurnin eftir Rolex úrum að vera meiri en framleiðslugetan.

Því kann framboð ákveðinna módela að vera takmarkað. Ný Rolex úr eru eingöngu seld hjá opinberum söluaðilum Rolex en þeir fá sendingar með reglubundnum hætti og hafa umsjón sjálfir með úthlutun og sölu úra til viðskiptavina.

Michelsen er stoltur meðlimur í alþjóðlegu neti opinberra söluaðila Rolex og getur veitt upplýsingar um framboð á Rolex úrum.

Hafðu samband

Use Enter or Space to expand or collapse sections. Use arrow keys to navigate between sections.

Skref 1 af 3: Skrifaðu skilaboð

Model Contact

Senda skilaboð: Skrifaðu skilaboð

Takk fyrir sýndan áhuga þinn á Rolex úrum. Skrifaðu skilaboðin þín og við munum senda þér svar fljótlega.

Halda áfram að skoða