
Rolex Deepsea
Oyster, 44 mm, Oystersteel stál

Úrin í Deepsea úrvalinu eru tákn um einstaka sérþekkingu Rolex á vatnsheldni og þoli gegn þrýstingi undir vatni
Oyster Perpetual Rolex Deepsea og Oyster Perpetual Deepsea Challenge úrin eru táknræn fyrir langt samband Rolex við djúpsjávarkönnuði og þau eru einstaklega þolin úr gerð fyrir atvinnukafara. Rolex Deepsea var sett á markað árið 2008 og er vatnshelt á allt að 3.900 metra (12.800 feta) dýpi, á meðan Deepsea Challenge, sem kom á markaðinn árið 2022 er vatnshelt á allt að 11.000 metra (36.090 feta) dýpi.

Rolex Deepsea uppfyllir nákvæmar kröfur atvinnukafara hvað varðar þol gegn þrýstingi undir vatni, nákvæmni og áreiðanleika. Útlit þess og eðlislægir eiginleikar þess samræmast Professional úrunum í Oyster Perpetual vörulínunni.
Þegar þetta úr kom fyrst á markað var það fyrsta úrið með Ringlock-búnaði, sem er einstök hönnun kassans sem gerir honum kleift að þola þrýstinginn á þessari miklu dýpt. 44 mm Oyster kassinn er með helíum þrýstiventil.

Rolex Deepsea úr Oystersteel er með svarta skífu eða dökkbláa skífu. Það er með snúanlegan hring í eina átt með Cerachrom innleggi úr svörtu keramíki Árið 2024 kynnti merkið til sögunnar útgáfu úr 18 kt gulli með blárri skífu og Cerachrom hringinnleggi úr bláu keramíki.


Deepsea Challenge tryggir Rolex sinn sess sem frumkvöðlamerki í úraheiminum fyrir djúpsjávarköfun og sérþekkingu þess á vatnsheldni og þoli gegn þrýstingi undir vatni.
Þetta 50 mm úr er afbrigði af Rolex Deepsea Challenge, sem var tilraunaúr sem fylgdi með kvikmyndagerðarmanninum og könnuðinum James Cameron ofan í Maríanadjúpálinn árið 2012, fest utan á kafbátinn hans.
Deepsea Challenge er gert úr RLX títani og fæst með djúpsvartri skífu og snúanlegum hring í eina átt með kvörðuðu Cerachrom innleggi úr svörtu keramíki.

Ringlock-búnaðurinn, sem Rolex hefur einkaleyfi fyrir, er í kafaraúrum merkisins sem eru hönnuð fyrir mikla dýpt, Rolex Deepsea og Deepsea Challenge. Þessi búnaður er framhald af rannsóknunum á vatnsheldni Oyster og er með þykkt, aðeins kúpt safírgler, sterkan þéttihring og úrbakið er úr RLX títani.
Þéttihringurinn er gerður úr niturblönduðu stáli hjá Rolex Deepsea úr Oystersteel og Deepsea Challenge, á meðan hann er framleiddur úr bláu hátækni keramíki– í fyrsta skipti fyrir þennan íhlut – hjá 18 kt gullútgáfu Rolex Deepsea.

Oyster kassinn hjá báðum gerðunum er einnig með helíum-þrýstiventil sem fékk skráð einkaleyfi árið 1967. Þessi þrýstiventill verndar Rolex kafaraúr við djúpköfun með því að hleypa út umframþrýstingi sem safnast upp inni í úrakassanum þegar kafarinn gengur í gegnum þrýstingsminnkun í þrýstiklefa – sem er nauðsynlegt ferli fyrir köfun í langan tíma – án þess að það minnki vatnsheldni úrsins.

Algjör áreiðanleiki og öryggi eru lífsnauðsynleg við djúpsjávarköfun. Vatnsheldni hjá öllum Rolex Deepsea og Deepsea Challenge úrum er prófuð með öryggismörk upp á 25%, í samræmi við staðalinn sem er í notkun fyrir kafaraúr.
Rolex Deepsea er vatnshelt niður á 3.900 metra dýpi og er því látið þola þrýsting niður að 4.875 metrum. Deepsea Challenge er vatnshelt niður að 11.000 metrum og er látið þola þrýsting sem nemur 13.750 metra dýpi.
Til að gera þessi ströngu próf hannaði merkið sérstakan þrýstiklefa fyrir Rolex Deepsea og háþrýstiklefa fyrir Deepsea Challenge, í samstarfi við Comex (Compagnie Maritime d‘Expertises), heimsfrægt franskt fyrirtæki sem sérhæfir sig í köfunarverkefnum og þrýstitækni.

Deepsea úr eru með Superlative Chronometer vottun, rétt eins og öll úr frá Rolex. Þessi vottun sannar að öll úr sem eru send frá verkstæðum vörumerkisins hafa gengist undir röð prófana í rannsóknarstofum Rolex samkvæmt kröfum fyrirtækisins. Superlative Chronometer vottunin er sýnd með græna innsiglinu og henni fylgir fimm ára ábyrgð.