Fara beint í efni
Skip to main content
  • Rolex Deepsea

Rolex

Rolex Deepsea

Oyster, 44 mm, gull

RMC: M136668LB-0001

9.900.000 kr.

Watch image gallery

Watch image gallery

Viewing image 1 of 4

  • Rolex Deepsea - Image 1

Rolex International Guarantee card in green leather holder

Specifications

Módel týpa
136668LB
Ól / keðja
Oyster, þriggja hluta gegnheilir hlekkir
Úrkassi
Oyster, 44 mm, gull
Gangverk
Stöðugt, vélrænt, sjálftrekkjandi
Vatnsvörn
Vatnshelt við 3.900 metra / 12.800 fet, öryggisloki fyrir helíum
Verkgerð
3235, framleiðandi Rolex
Hringur
Hringur með 60 mínútna kvörðun og snýst í eina átt, Cerachrom innlegg úr keramik með rispuvörn, gullhúðaðir tölustafir og kvarðanir
Hleðsluforði
U.þ.b. 70 klukkustundir
Skífa
Blá
Vottun
Superlative Chronometer (COSC + Rolex vottun eftir umgjörð)

Hringur úr keramik og ljómandi vísir

Kvarðaður 60 mínútna snúanlegur hringur í eina átt á Rolex Deepsea gerir köfurum kleift að fylgjast á nákvæman og öruggan máta með köfun sinni og þrýstingsminnkunartíma sínum. Þríhyrningslaga „núll“merkið á kvörðuninni sést í myrkri, þökk sé innfelldu hylki með ljómandi efni sem gefur frá sér langvarandi bláan bjarma. Kvörðunin á hringnum er húðuð með PVD (eðlisfræðileg eimhúðun) með þunnu lagi af gulli.

Bláu litirnir í þéttihringnum, skífunni og Cerachrom hringinnlegginu skapa saman litbrigði hafsins sem eru innrömmuð af 18 kt gulli í úrkassanum og Oyster Keðjunni.

Hringur úr keramik og ljómandi vísir

Blá skífa

Blálakkaða skífan er með nafnið „DEEPSEA“ áletrað í ljósgulum lit. Skífan er með stór Chromalight merki fyrir klukkustundir og vísarnir eru með ljómandi efni sem gefur frá sér langvarandi bláan bjarma sem auðveldar læsileika í myrkri.

Einföld form klukkustundamerkjanna – þríhyrningar, hringir og ferhyrningar – og vísarnir sem eru ólíkir að stærð og lögun, eru fyllt með ljómandi efni sem gefur frá sér langvarandi bláan ljóma, allt að tvöfalt lengur en hjá hefðbundnum sjálflýsandi efnum.

Blá skífa

18 kt gull

Með því að reka eigin málmsteypu býr Rolex yfir framúrskarandi getu til að steypa hágæða 18 kt gullblöndur. Samkvæmt hlutfalli af silfri, kopar, platínu eða palladíum sem bætt er við fást mismunandi tegundir af 18 kt gulli: gult, bleikt eða hvítt. Þetta fer aðeins fram með hreinustu málmum og eru þeir skoðaðir vandlega af rannsóknarstofunni á staðnum þar sem notast er við nýjustu tækni. Þetta er gert áður en gullið er mótað og lagað þar sem sama áhersla á nákvæmni er viðhöfð. Skuldbinding Rolex við ágæti hefst við upptökin.

18 kt gull

Framboð módela

Öll Rolex úr eru samsett í höndunum þar sem áhersla er lögð á að tryggja framúrskarandi gæði. Strangir staðlar Rolex takmarka framleiðslugetu fyrirtækisins og stundum kann því eftirspurnin eftir Rolex úrum að vera meiri en framleiðslugetan.

Því kann framboð ákveðinna módela að vera takmarkað. Ný Rolex úr eru eingöngu seld hjá opinberum söluaðilum Rolex en þeir fá sendingar með reglubundnum hætti og hafa umsjón sjálfir með úthlutun og sölu úra til viðskiptavina.

Michelsen er stoltur meðlimur í alþjóðlegu neti opinberra söluaðila Rolex og getur veitt upplýsingar um framboð á Rolex úrum.

Hafðu samband

Use Enter or Space to expand or collapse sections. Use arrow keys to navigate between sections.

Skref 1 af 3: Skrifaðu skilaboð

Model Contact

Senda skilaboð: Skrifaðu skilaboð

Takk fyrir sýndan áhuga þinn á Rolex úrum. Skrifaðu skilaboðin þín og við munum senda þér svar fljótlega.

Halda áfram að skoða