Rolex
Explorer 36
Oyster, 36 mm, Oystersteel stál
M124270-0001

Rolex
Oyster, 36 mm, Oystersteel stál
M124270-0001

Skífan er andlit Rolex úrsins og skapar auðkenni þess og læsileika. Einkennandi 3, 6 og 9 tölustafir Explorer módelsins eru fylltir með ljómandi efni sem gefur frá sér langvarandi bláan bjarma, eins og klukkutímamerki og vísar. Eins og með öll Rolex úr er skífa Explorer 36 hönnuð og framleidd innanhúss að mestu leyti í höndunum til að tryggja fullkomnun.
Oyster Perpetual Explorer 36 kallar fram glæsileika og skapar hreinar línur sem hafa löngum staðfest úrið sem táknrænt úr. Slétti hringurinn í Oystersteel er sterkur en samt glæsilegur og í fullkomnu samræmi við táknræna arfleifð Explorer.
Rolex notar Oystersteel í kössum stálúra sinna. Oystersteel er sérstaklega þróað af vörumerkinu og tilheyrir 904L stálfjölskyldunni, málmblöndum sem oftast eru notaðar í hátækni- og í geim- og efnaiðnaði þar sem hámarksþol gegn tæringu er nauðsynlegt. Oystersteel er með mikið þol, býður upp á framúrskarandi áferð eftir slípun og viðheldur fegurð sinni jafnvel í erfiðustu umhverfum.
Öll Rolex úr eru samsett í höndunum þar sem áhersla er lögð á að tryggja framúrskarandi gæði. Strangir staðlar Rolex takmarka framleiðslugetu fyrirtækisins og stundum kann því eftirspurnin eftir Rolex úrum að vera meiri en framleiðslugetan.
Því kann framboð ákveðinna módela að vera takmarkað. Ný Rolex úr eru eingöngu seld hjá opinberum söluaðilum Rolex en þeir fá sendingar með reglubundnum hætti og hafa umsjón sjálfir með úthlutun og sölu úra til viðskiptavina.
Michelsen er stoltur meðlimur í alþjóðlegu neti opinberra söluaðila Rolex og getur veitt upplýsingar um framboð á Rolex úrum.
Use Enter or Space to expand or collapse sections. Use arrow keys to navigate between sections.

Takk fyrir sýndan áhuga þinn á Rolex úrum. Skrifaðu skilaboðin þín og við munum senda þér svar fljótlega