
Explorer 36
Oyster, 36 mm, Oystersteel stál

Oyster Perpetual Explorer og Oyster Perpetual Explorer II þróuðust út frá sterkri tengingu Rolex við könnunarleiðangra. Þau fara í leiðangra með fólki.
Merkið gat prófað þessi úr við raunverulegar aðstæður með því að útbúa könnunarleiðangra til heimskautanna, á fjöll og ofan í hella í mörg ár. Sumir af hugrökkustu landkönnuðum, fjallgöngumönnum og vísindamönnum heims fóru með þessi úr á staði sem voru prófsteinn á áreiðanleika þeirra við erfiðustu aðstæður.

Upp úr 1930 byrjaði Rolex að útbúa fjölda leiðangra með Oyster Perpetual úrum. Umsagnirnar sem bárust voru notaðar til að hanna svokallaða Professional vörulínu: úr sem eru einnig notuð sem verkfæri, til dæmis Explorer og Explorer II. Rolex úr hafa tekið þátt í nokkrum af mestu ævintýrum mannkynsins. Eitt slíkt ævintýri var leiðangurinn upp á Everest-fjall árið 1953, undir forystu Sir John Hunt, þar sem Sir Edmund Hillary og Tenzing Norgay urðu þeir fyrstu til að ná upp á tindinn á hæsta fjalli í heimi.

Explorer kom á markað árið 1953 og aðgreindi sig með einfaldri hönnun og mjög læsilegri svartri skífu með stórum klukkutímamerkjum og einkennandi tölustöfunum 3, 6 og 9. Þetta er verkfæri sem var gert til að sýna tímann nákvæmlega við allar aðstæður.Það er auðvelt að lesa á skífuna, jafnvel í myrkri, þökk sé Chromalight-lýsingunni.Í dag fæst Explorer í 36 mm – sömu stærð og upprunalega módelið frá 1953 – og í 40 mm stærð.
Explorer II var kynnt til sögunnar árið 1971 og rétt eins og Explorer viðheldur það hinu einstaka sambandi á milli Rolex og könnunar. Explorer sýnir 24 klukkustundir með auka appelsínugulum klukkustundavísi og greyptum hring til að notandinn geti auðveldlega greint dag frá nóttu – það er gagnlegur kostur á stöðum þar sem getur verið erfitt að greina dag frá nóttu, til dæmis við heimskautin á sumum tímum ársins og í hellum – eða lesið tímann á öðru tímabelti.
Úrin í Explorer línunni hafa þróast stöðugt til að uppfylla þarfir könnuða og orðið sterkbyggðari og áreiðanlegri. Explorer 36 fæst í Oystersteel eða gulri Rolesor útgáfu (blöndu af Oystersteel og gulli), á meðan Explorer 40 og Explorer II eru eingöngu gerð úr Oystersteel. Oystersteel er einstök málmblanda, sérstaklega hönnuð fyrir Rolex og með frábært þol gegn tæringu.

Allar gerðirnar þrjár eru með Oyster keðju sem er með hlekki í þremur hlutum og er þekkt fyrir styrkleika sinn. Hún er með Oysterlock öryggislás sem leggst saman, sem er sérhannaður af Rolex og með skráð einkaleyfi, til að keðjan opnist ekki fyrir slysni. Úrið er einnig með Easylink-stækkunarhlekk sem merkið hannaði og gerir notandanum kleift að stilla ólina auðveldlega um u.þ.b. 5 mm.
Explorer 36 og Explorer 40 er með verkgerð 3230 og Explorer II er með verkgerð 3285. Bæði úrin eru með sjálftrekkjandi, vélrænt gangverk sem var þróað og er framleitt eingöngu af Rolex. Þau eru með hleðsluforða sem endist í um það bil 70 klukkustundir.

Explorer og Explorer II eru með Superlative Chronometer vottun, rétt eins og öll úr frá Rolex. Þessi vottun sannar að öll úr sem eru send frá verkstæðum vörumerkisins hafa gengist undir röð prófana í rannsóknarstofum Rolex samkvæmt kröfum fyrirtækisins. Superlative Chronometer vottunin er sýnd með græna innsiglinu sem fylgir öllum Rolex úrum og henni fylgir fimm ára ábyrgð.