Rolex
Explorer II
Oyster, 42 mm, Oystersteel stál
M226570-0001

Rolex
Oyster, 42 mm, Oystersteel stál
M226570-0001

Explorer II er búið öðrum 24 stunda vísi; sérstakur vísir fer í kringum skífuna á 24 klukkustundum í stað þeirra hefðbundinna 12 og bendir á fastan hring með 24 stunda kvörðun. Þessi aðgerð gerir notandanum kleift að greina á milli klukkustunda dagsins og klukkustunda næturinnar. Slíkt er nauðsynlegt fyrir þá sem fara í umhverfi þar sem myrkur ríkir, til dæmis niður í hella eða þar sem sólin sest aldrei – eins og á heimskautasvæðunum á sumrin.
Explorer II er með dagsetningu, appelsínugulan 24 stunda vísi til viðbótar og fastan hring með 24 stunda kvörðun sem gerir kleift að greina á milli dags og nætur. Það varð fljótt vinsælasta úrið fyrir hellafræðinga, eldfjallafræðinga og heimskautakönnuða. Merki fyrir klukkustundir og vísar eru með mjög læsilega Chromalight lýsingu með langvarandi bláan ljóma.
Rolex notar Oystersteel í kössum stálúra sinna. Oystersteel er sérstaklega þróað af vörumerkinu og tilheyrir 904L stálfjölskyldunni, málmblöndum sem oftast eru notaðar í hátækni- og í geim- og efnaiðnaði þar sem hámarksþol gegn tæringu er nauðsynlegt. Oystersteel er með mikið þol, býður upp á framúrskarandi áferð eftir slípun og viðheldur fegurð sinni jafnvel í erfiðustu umhverfum.
Öll Rolex úr eru samsett í höndunum þar sem áhersla er lögð á að tryggja framúrskarandi gæði. Strangir staðlar Rolex takmarka framleiðslugetu fyrirtækisins og stundum kann því eftirspurnin eftir Rolex úrum að vera meiri en framleiðslugetan.
Því kann framboð ákveðinna módela að vera takmarkað. Ný Rolex úr eru eingöngu seld hjá opinberum söluaðilum Rolex en þeir fá sendingar með reglubundnum hætti og hafa umsjón sjálfir með úthlutun og sölu úra til viðskiptavina.
Michelsen er stoltur meðlimur í alþjóðlegu neti opinberra söluaðila Rolex og getur veitt upplýsingar um framboð á Rolex úrum.
Use Enter or Space to expand or collapse sections. Use arrow keys to navigate between sections.

Takk fyrir sýndan áhuga þinn á Rolex úrum. Skrifaðu skilaboðin þín og við munum senda þér svar fljótlega