Fara beint í efni
Michelsen 1909
Skip to main content
  • Land-Dweller 40

Rolex

Land-Dweller 40

Oyster, 40 mm, platína

M127336-0001

Watch image gallery

Watch image gallery

Viewing image 1 of 4

  • Land-Dweller 40 - Image 1

Close-up of Rolex Oyster Perpetual watch showcasing the fluted bezel and dial craftsmanship

Specifications

Reference númer
127336
Strap/Chain
Flöt Jubilee keðja, gegnheilir hlekkir í fimm hlutum
Watch case
Oyster, 40 mm, platína
Clockwork
Stöðugt, vélrænt, sjálftrekkjandi
Waterproofness
Vatnshelt við 100 metra / 330 fet
Calibre
7135, framleiðandi Rolex
Bezel
Riffluð
Power reserve
U.þ.b. 66 klukkustundir
Dial
Blá, gatamynstur
Certification
Superlative Chronometer (COSC + Rolex vottun eftir umgjörð)

Blá skífa

Þessi ljósbláa skífa – sem er litur notaður eingöngu í úrum úr platínu – er skreytt með gatamynstri og geislaáferð. Þessi sköpun krefst hefðbundinnar verkkunnáttu og hátæknilegra aðferða og fer fram að öllu leyti innan Rolex. Gatamynstrið er skorið með femtósekúnduleysigeisla sem er einnig notaður til að skera út fíngerðar línurnar í raufunum sem aðskilja götin í mynstrinu. Skífan er með Chromalight-lýsingu þar sem tölustafirnir og klukkustundamerkin eru auðlæsileg við hvaða aðstæður sem er. Vísarnir eru einnig ljómandi og voru sérstaklega hannaðir fyrir þetta módel.

Blá skífa

Rifflaður hringur

Rifflaður hringur Rolex er einkennandi. Upphaflega þjónaði rifflun Oyster hringsins hagnýtum tilgangi: það skrúfaði hringinn á úrkassann til að tryggja vatnsþéttni úrsins. Það var því eins og rifflunin aftan á úrbakinu sem var einnig skrúfað á úrkassann til að skapa vatnsþéttni með sérstökum verkfærum Rolex. Með tímanum varð rifflunin fagurfræðilegur þáttur, ósvikið auðkenni Rolex. Í dag er rifflaði hringurinn einkennandi og úr platínu í Land-Dweller 40.

Rifflaður hringur

Platína

Platína er sjaldséð og dýrmæt og sláandi vegna silfurhvítleika hennar og líflegs ljóma. Hún er á meðal þéttustu og þyngstu málma í heiminum og einkennist af sérstökum efna- og eðlisfræðilegum eiginleikum, svo sem óvenjulega miklu tæringarþoli. Þversögnin er sú að hún er einnig mjúk, teygjanleg og mjög sveigjanleg, sem gerir vinnslu og slípun sérstaklega erfiða og útheimtir mjög mikla færni. Rolex notar alltaf 950 platínu, málmblöndu sem samanstendur af 950‰ (þúsundasta) platínu. Hún er vandlega smíðuð innanhúss af sérhæfðum málmsmiðum Rolex. Göfugasta málmtegundin fyrir fáguðustu úrin.

Platína

Framboð módela

Öll Rolex úr eru samsett í höndunum þar sem áhersla er lögð á að tryggja framúrskarandi gæði. Strangir staðlar Rolex takmarka framleiðslugetu fyrirtækisins og stundum kann því eftirspurnin eftir Rolex úrum að vera meiri en framleiðslugetan.

Því kann framboð ákveðinna módela að vera takmarkað. Ný Rolex úr eru eingöngu seld hjá opinberum söluaðilum Rolex en þeir fá sendingar með reglubundnum hætti og hafa umsjón sjálfir með úthlutun og sölu úra til viðskiptavina.

Michelsen er stoltur meðlimur í alþjóðlegu neti opinberra söluaðila Rolex og getur veitt upplýsingar um framboð á Rolex úrum.

Hafðu samband

Use Enter or Space to expand or collapse sections. Use arrow keys to navigate between sections.

Model Contact

Senda skilaboð: Skrifaðu skilaboð

Takk fyrir sýndan áhuga þinn á Rolex úrum. Skrifaðu skilaboðin þín og við munum senda þér svar fljótlega

Rolex Land-Dweller vörulínan

Halda áfram að skoða

Showing page 1 of 1