Rolex
Oyster Perpetual 34
Oyster, 34 mm, gull
RMC: M124208-0001
5.670.000 kr.

Rolex
Oyster, 34 mm, gull
RMC: M124208-0001
5.670.000 kr.

Skífan er með klukkustundamerki úr náttúrulegum steini við tölustafina 3, 6 og 9. Litirnir sem voru búnir til fyrir Oyster Perpetual úrin byrja sem lakkmálning sem verður að bera nákvæmlega á í umhverfi með stýrðu andrúmslofti til að forðast ryk og önnur mengandi efni. Lag eftir lag af lakkmálningu er borið á látúnsplötu skífunnar, alls sex lög, til að búa til jafnt og einsleitt yfirborð. Síðasta skrefið er yfirborðslökkun og pússun til að ná fram fullum ljóma og dýpt litarins. Áletranirnar eru síðan stimplaðar á og klukkustundavísarnir og trekkjarinn eru festir á með höndunum. Skínandi og fullkomin skífan er nú tilbúin til að fara ofan á gangverkið við samsetningu úrsins.
Með því að reka eigin málmsteypu býr Rolex yfir framúrskarandi getu til að steypa hágæða 18 kt gullblöndur. Samkvæmt hlutfalli af silfri, kopar, platínu eða palladíum sem bætt er við fást mismunandi tegundir af 18 kt gulli: gult, bleikt eða hvítt. Þetta fer aðeins fram með hreinustu málmum og eru þeir skoðaðir vandlega af rannsóknarstofunni á staðnum þar sem notast er við nýjustu tækni. Þetta er gert áður en gullið er mótað og lagað þar sem sama áhersla á nákvæmni er viðhöfð. Skuldbinding Rolex við ágæti hefst við upptökin.
Oyster keðjan er fullkomin samsetning forms og virkni, fagurfræði og tækni. Þessi sterka og þægilega málmkeðja var sett á markað á síðari hluta 4. áratugar síðustu aldar og er með breiða, flata hlekki í þremur hlutum og er alhliða keðja í vörulínu Oyster. Hjá Oyster Perpetual módelum er Oyster keðjan með Oysterclasp.
Öll Rolex úr eru samsett í höndunum þar sem áhersla er lögð á að tryggja framúrskarandi gæði. Strangir staðlar Rolex takmarka framleiðslugetu fyrirtækisins og stundum kann því eftirspurnin eftir Rolex úrum að vera meiri en framleiðslugetan.
Því kann framboð ákveðinna módela að vera takmarkað. Ný Rolex úr eru eingöngu seld hjá opinberum söluaðilum Rolex en þeir fá sendingar með reglubundnum hætti og hafa umsjón sjálfir með úthlutun og sölu úra til viðskiptavina.
Michelsen er stoltur meðlimur í alþjóðlegu neti opinberra söluaðila Rolex og getur veitt upplýsingar um framboð á Rolex úrum.
Use Enter or Space to expand or collapse sections. Use arrow keys to navigate between sections.
Skref 1 af 3: Skrifaðu skilaboð

Takk fyrir sýndan áhuga þinn á Rolex úrum. Skrifaðu skilaboðin þín og við munum senda þér svar fljótlega.