
Oyster Perpetual 34
Oyster, 34 mm, Oystersteel stál

Úrin í Oyster Perpetual línunni eru tákn um alhliða og sígildan stíl og sýna nauðsynlegar, daglegar upplýsingar – klukkustundir, mínútur og sekúndur.
Þessar gerðir hafa að geyma sígilt form og virkni, sem á sterkar rætur í frumkvöðlauppruna Rolex. Þau eru tákn fyrir tímamæla í sínu hreinasta formi.

Oyster Perpetual úrin eru beinir afkomendur upprunalega Oyster úrsins sem kom á markað árið 1926. Það er fyrsta vatnsþétta armbandsúrið og grunnurinn sem Rolex hefur byggt orðspor sitt á. Oyster Perpetual er með Superlative Chronometer vottun og hefur alla helstu eiginleika Oyster Perpetual vörulínunnar – framúrskarandi chronometer nákvæmni, vatnsheldan Oyster kassa og vélrænt sjálftrekkjandi gangverk með Perpetual sjálfvindulóð. Þetta úr er laust við óþarfa íburð og býr yfir fágun. Það er þekkt fyrir alhliða, sígildan stíl sinn.

The Oyster Perpetual sýnir tímann á skýran og nákvæman hátt – klukkustundir, mínútur og sekúndur. Ólíkar útgáfur úrsins einkennast af skífum í margvíslegum litum, lágstemmdum eða skærum: fjölbreytt andlit en ávallt með nútímalegt útlit. Þau passa við alla stíla og fást með drapplituðu, lavender eða pistachio möttu lakki, bleiku, grænu, túrkisbláu, svörtu eða med blue lakki eða með silfraðri geislaáferð. Oyster Perpetual fæst í fimm stærðum – 28, 31, 34, 36 og 41 mm – sem er mesta úrvalið af stærðum í vörulínu frá Rolex.
Úrin eru með öruggri og þægilegri Oyster keðju með hlekkjum í þremur hlutum. Keðjan er með Oysterclasp sem leggst saman og Easylink comfort Easylink-stækkunarhlekk sem Rolex hannaði og leyfir notandanum að stytta eða lengja keðjuna um u.þ.b. 5 mm.
Oyster Perpetual er eingöngu gert úr Oystersteel. Oystersteel var sérhannað fyrir Rolex og tilheyrir 904L stálhópnum – sem eru stálblöndur sem eru oftast notaðar í hátækni. Oystersteel-stál er sérstaklega þolið gegn ryði, hefur einstaka áferð þegar það er pússað og heldur gljáanum lengi.

Oyster Perpetual kassinn er vatnsþéttur á allt að 100 metra dýpi (330 fet). Miðjukassinn er gerður úr gegnheilu Oystersteel. Úrbakið er með rákir á hliðunum og er skrúfað niður með sérstöku verkfæri sem gerir aðeins Rolex úrsmiðum kleift að fá aðgang að gangverkinu. Annar mikilvægur hlutur í vatnsþéttu samsetningunni er Twinlock trekkjarinn sem er með tvöföldu vatnsvarnarkerfi og skrúfast þétt upp við kassann.

Oyster Perpetual er með annaðhvort verkgerð 2232 (fyrir 28, 31 og 34 mm úr) eða verkgerð 3230 (fyrir 36 og 41 mm úr). Það eru sjálftrekkjandi vélræn gangverk sem eru að öllu leyti hönnuð og framleidd af Rolex. Þau bjóða upp á framúrskarandi afköst, sérstaklega hvað varðar nákvæmni, hleðsluforða, þægindi og áreiðanleika.


Oyster Perpetual er með Superlative Chronometer vottun, rétt eins og öll úr frá Rolex. Þessi vottun sannar að öll úr sem eru send frá verkstæðum vörumerkisins hafa gengist undir röð prófana í rannsóknarstofum Rolex samkvæmt kröfum fyrirtækisins. Superlative Chronometer vottunin er sýnd með græna innsiglinu sem fylgir öllum Rolex úrum og henni fylgir fimm ára ábyrgð.