Rolex
Oyster Perpetual 28
Oyster, 28 mm, Oystersteel stál
M276200-0001

Rolex
Oyster, 28 mm, Oystersteel stál
M276200-0001

Geislaáferðin býr til fíngerð ljósbrot á mörgum skífum í Oyster Perpetual vörulínunni. Hún fæst með nákvæmri burstunartækni sem býr til raufar sem liggja út frá miðju skífunnar. Ljósið brotnar eins meðfram öllum raufunum og býr til einkennandi bjarma sem færist til með hreyfingum úlnliðsins. Þegar búið er að búa til geislaáferðina er skífan lituð með eðlisfræðilegri eimhúðun eða rafhúðun. Létt lakkáferð veitir skífunni lokaáferð hennar.
Rolex notar Oystersteel í kössum stálúra sinna. Oystersteel er sérstaklega þróað af vörumerkinu og tilheyrir 904L stálfjölskyldunni, málmblöndum sem oftast eru notaðar í hátækni- og í geim- og efnaiðnaði þar sem hámarksþol gegn tæringu er nauðsynlegt. Oystersteel er með mikið þol, býður upp á framúrskarandi áferð eftir slípun og viðheldur fegurð sinni jafnvel í erfiðustu umhverfum.
Oyster keðjan er fullkomin samsetning forms og virkni, fagurfræði og tækni. Þessi sterka og þægilega málmkeðja var sett á markað á síðari hluta 4. áratugar síðustu aldar og er með breiða, flata hlekki í þremur hlutum og er alhliða keðja í vörulínu Oyster. Hjá Oyster Perpetual módelum er Oyster keðjan með Oysterclasp.
Öll Rolex úr eru samsett í höndunum þar sem áhersla er lögð á að tryggja framúrskarandi gæði. Strangir staðlar Rolex takmarka framleiðslugetu fyrirtækisins og stundum kann því eftirspurnin eftir Rolex úrum að vera meiri en framleiðslugetan.
Því kann framboð ákveðinna módela að vera takmarkað. Ný Rolex úr eru eingöngu seld hjá opinberum söluaðilum Rolex en þeir fá sendingar með reglubundnum hætti og hafa umsjón sjálfir með úthlutun og sölu úra til viðskiptavina.
Michelsen er stoltur meðlimur í alþjóðlegu neti opinberra söluaðila Rolex og getur veitt upplýsingar um framboð á Rolex úrum.
Use Enter or Space to expand or collapse sections. Use arrow keys to navigate between sections.

Takk fyrir sýndan áhuga þinn á Rolex úrum. Skrifaðu skilaboðin þín og við munum senda þér svar fljótlega