Fara beint í efni
Michelsen 1909
Skip to main content
  • Sky-Dweller

Rolex

Sky-Dweller

Oyster, 42 mm, hvítagull

M336239-0002

Watch image gallery

Watch image gallery

Viewing image 1 of 4

  • Sky-Dweller - Image 1

Close-up of Rolex Oyster Perpetual watch showcasing the fluted bezel and dial craftsmanship

Specifications

Reference númer
336239
Strap/Chain
Oysterflex
Watch case
Oyster, 42 mm, hvítagull
Clockwork
Stöðugt, vélrænt, sjálftrekkjandi, tvö tímabelti, ársdagatal
Waterproofness
Vatnshelt við 100 metra / 330 fet
Calibre
9002, framleiðandi Rolex
Bezel
Rifflaður, Rolex Ring Command sem snýst í báðar áttir
Power reserve
U.þ.b. 72 klukkustundir
Dial
Skærsvart
Certification
Superlative Chronometer (COSC + Rolex vottun eftir umgjörð)

Oysterflex ólin

Nýja Oysterflex ól Sky-Dweller, þróuð af Rolex og nýtur einkaleyfis, er sportlegur valkostur í stað keðju úr málmi. Ólin er fest við úrkassann og Oysterclasp lásinn með málmblaði úr sveigjanlegri málmblöndu títans og nikkels. Blaðið er yfirmótað með hágæða svörtu teygjuefni sem þolir einkar vel áhrif frá umhverfinu, er mjög endingargott og fer vel fyrir notanda úrsins. Til að auka þægindin er innri hluti Oysterflex ólarinnar með bólstrun sem nýtur einkaleyfis. Hún kemur jafnvægi á úrið á úlnliðnum og er með 18 kt hvítagull Oysterclasp. Einnig er það með Rolex Glidelock-lás með lengingu sem var hannaður af fyrirtækinu og nýtur einkaleyfis. Þetta frumlega tennta kerfi sem er ísett undir klemmunni gerir kleift að fínstilla lengd ólarinnar um allt 15 mm í um það bil 2,5 mm þrepum, án þess að þurfi að nota áhöld.

Oysterflex ólin

18 kt hvítagull

Með því að reka eigin málmsteypu býr Rolex yfir framúrskarandi getu til að steypa hágæða 18 kt gullblöndur. Samkvæmt hlutfalli af silfri, kopar, platínu eða palladíum sem bætt er við fást mismunandi tegundir af 18 kt gulli: gult, bleikt eða hvítt. Þetta fer aðeins fram með hreinustu málmum og eru þeir skoðaðir vandlega af rannsóknarstofunni á staðnum þar sem notast er við nýjustu tækni. Þetta er gert áður en gullið er mótað og lagað þar sem sama áhersla á nákvæmni er viðhöfð. Skuldbinding Rolex við ágæti hefst við upptökin.

18 kt hvítagull

Skærsvört skífa

Fastur, hvolfdur rauður þríhyrningur á skífunni bendir á valinn viðmiðunartíma - tímann heima eða á venjulegum vinnustað ferðamannsins - á disk til hliðar við miðju. Í fljótu bragði greinir þessi 24 stunda vísir á milli dag- og næturstunda í hinu tímabeltinu. Skífurnar eru nú með rétthyrndum merkjum fyrir klukkustund og lengri vísum sem og Chromalight-lýsingu með langvarandi ljóma sem bætir læsileika. Dökkrauður rétthyrningur er inn af 12 gluggum í kringum skífuna sem sýnir núverandi mánuð. Hann er einkennandi fyrir Saros ársdagatalið. Þessi hugvitssami vélbúnaður einfaldar líf notanda úrsins en viðkomandi þarf ekki lengur að stilla dagsetninguna við lok 30 daga mánaðar. Ársdagatal sýnir rétta dagsetningu allt árið um kring. Aðeins þarf að framkvæma eina breytingu, þann 1. mars (febrúar er aðeins með 28 eða 29 daga). Dagsetningin er tengd við staðartíma og breytist sjálfkrafa í samræmi við staðbundið tímabelti ferðalangans.

Skærsvört skífa

Framboð módela

Öll Rolex úr eru samsett í höndunum þar sem áhersla er lögð á að tryggja framúrskarandi gæði. Strangir staðlar Rolex takmarka framleiðslugetu fyrirtækisins og stundum kann því eftirspurnin eftir Rolex úrum að vera meiri en framleiðslugetan.

Því kann framboð ákveðinna módela að vera takmarkað. Ný Rolex úr eru eingöngu seld hjá opinberum söluaðilum Rolex en þeir fá sendingar með reglubundnum hætti og hafa umsjón sjálfir með úthlutun og sölu úra til viðskiptavina.

Michelsen er stoltur meðlimur í alþjóðlegu neti opinberra söluaðila Rolex og getur veitt upplýsingar um framboð á Rolex úrum.

Hafðu samband

Use Enter or Space to expand or collapse sections. Use arrow keys to navigate between sections.

Model Contact

Senda skilaboð: Skrifaðu skilaboð

Takk fyrir sýndan áhuga þinn á Rolex úrum. Skrifaðu skilaboðin þín og við munum senda þér svar fljótlega

Rolex Sky-Dweller vörulínan

Halda áfram að skoða

Showing page 1 of 1