Fara beint í efni
Michelsen 1909
Skip to main content
Perpetual 1908

Rolex Sky-Dweller
Á háflugi

Oyster Perpetual Sky-Dweller er fágað og tæknilega háþróað og var hannað fyrir heimsferðalanga.

Það er með Saros ársdagatal og Ring Command kerfi og getur sýnt tvö tímabelti samtímis ásamt dagsetningu og mánuði. Það er auðvelt að stilla þau með einni einfaldri hreyfingu.

Introduction to Rolex

SkyDweller blandar saman vélrænni fágun með upprunalegum glugga og býr yfir einstökum eiginleikum.

Allt frá sköpun Sky-Dweller árið 2012 hefur það verið ætlað þeim sem sjá heiminn sem eitt svæði, án landamæra. Það kemur í veg fyrir að ferðalangar lendi í vandræðum vegna tímamismunar, svo þeir geti alltaf verið einu skrefi á undan.

Perpetual 1908

Annað tímabelti sem er auðvelt að sjá

Sky-Dweller sýnir bæði tímann í öðru tímabelti og staðartímann, sem vísarnir sýna. Hitt tímabeltið, eða tilvísunartíminn, er sýnt með greinilegum, litlum þríhyrningi með rauðar útlínur á 24 klukkustunda diski sem snýst. Diskurinn er staðsettur á ská út frá miðjunni og er einkennandi fyrir útlit módelsins. Með honum er auðvelt að greina á milli dags og nætur sem er ómissandi kostur fyrir fólk sem ferðast heimshorna á milli.

Perpetual 1908

Nýstárlegt og auðlæsilegt ársdagatal

Saros ársdagatalið var hannað sérstaklega fyrir Sky-Dweller og er lykilatriði í auðkenni módelsins. Heiti búnaðarins, sem hefur nýstárlega hönnun, kemur frá gríska heitinu yfir tungl- og sólmyrkva.

Saros ársdagatalið skiptir sjálfkrafa á milli 30 og 31 dags mánaða. Það þarf því bara eina handvirka stillingu á ári á mánaðarmótum febrúar og mars. Það er einfalt og auðvelt að lesa. Núverandi mánuð má sjá í rauðum lit á einum af tólf gluggum við klukkustundamerkin í kringum skífuna.

Þessi nýjung í úrsmíði byggir á tveggja gíra hlutfalli og eingöngu fjórum tannhjólum var bætt við tafarlaust dagatal Rolex. Þessi einfalda uppbygging gefur Saros ársdagatalinu framúrskarandi áreiðanleika.

Perpetual 1908

Ring Command kerfi
Tímanum stjórnað

Ring Command kerfið var hannað af Rolex or er nýstárlegur búnaður sem tengir saman snúanlega hringinn, trekkjarann og gangverkið. Það gerir notandanum kleift að velja hverja aðgerð Sky-Dweller fyrir sig og stilla þær auðveldlega, fljótt og örugglega með trekkjaranum.

Notandinn getur auðveldlega snúið rifflaða hringnum rangsælis til að velja þá aðgerð sem hann vill stilla. Fyrsta hakið: dagsetning og mánuður. Annað hakið: staðartími. Þriðja hakið: tilvísunartími.

Perpetual 1908

Fyrir sanna heimsferðalanga

Þegar golfspilarar, siglingamenn eða knapar ferðast um heiminn þurfa þeir alltaf að vera tilbúnir, sama hver áfangastaðurinn eða vegalengdin er.

Spænski golfspilarinn Jon Rahm, brasilíski siglingamaðurinn Robert Scheidt og bandaríski knapinn Kent Farringon eru á meðal þeirra Rolex notanda sem velja Sky-Dweller.

Halda áfram að skoða

Showing page 1 of 1