Fara beint í efni
Skip to main content
  • Sky-Dweller

Rolex

Sky-Dweller

Oyster, 42 mm, gull

RMC: M336938-0008

8.920.000 kr.

Watch image gallery

Watch image gallery

Viewing image 1 of 4

  • Sky-Dweller - Image 1

Rolex International Guarantee card in green leather holder

Specifications

Módel týpa
336938
Ól / keðja
Jubilee, hlekkur í fimm hlutum
Úrkassi
Oyster, 42 mm, gull
Gangverk
Stöðugt, vélrænt, sjálftrekkjandi, tvö tímabelti, ársdagatal
Vatnsvörn
Vatnshelt við 100 metra / 330 fet
Verkgerð
9002, framleiðandi Rolex
Hringur
Rifflaður, Rolex Ring Command sem snýst í báðar áttir
Hleðsluforði
U.þ.b. 72 klukkustundir
Skífa
Skærgræn
Vottun
Superlative Chronometer (COSC + Rolex vottun eftir umgjörð)

Skærgræn skífa

Fastur, hvolfdur rauður þríhyrningur á skífunni bendir á valinn viðmiðunartíma - tímann heima eða á venjulegum vinnustað ferðamannsins - á disk til hliðar við miðju. Í fljótu bragði greinir þessi 24 stunda vísir á milli dag- og næturstunda í hinu tímabeltinu. Skífurnar eru nú með rétthyrndum merkjum fyrir klukkustund og lengri vísum sem og Chromalight-lýsingu með langvarandi ljóma sem bætir læsileika. Dökkrauður rétthyrningur er inn af 12 gluggum í kringum skífuna sem sýnir núverandi mánuð. Hann er einkennandi fyrir Saros ársdagatalið. Þessi hugvitssami vélbúnaður einfaldar líf notanda úrsins en viðkomandi þarf ekki lengur að stilla dagsetninguna við lok 30 daga mánaðar. Ársdagatal sýnir rétta dagsetningu allt árið um kring. Aðeins þarf að framkvæma eina breytingu, þann 1. mars (febrúar er aðeins með 28 eða 29 daga). Dagsetningin er tengd við staðartíma og breytist sjálfkrafa í samræmi við staðbundið tímabelti ferðalangans.

Skærgræn skífa

Rifflaði hringurinn

Rifflaður hringur Rolex er einkennandi. Upphaflega þjónaði rifflun Oyster hringsins hagnýtum tilgangi: hún skrúfaði hringinn á kassann til að tryggja vatnsheldni úrsins. Það var því eins og rifflunin aftan á úrbakinu sem var einnig skrúfað á úrkassann til að skapa vatnsþéttni með sérstökum verkfærum Rolex. Með tímanum varð rifflunin fagurfræðilegur þáttur, ósvikið auðkenni Rolex. Í dag er rifflaði hringurinn einkennandi og ávallt úr gulli. Sky-Dweller er með búnað sem tengir saman snúningshringinn, trekkjarann og gangverkið: Ring Command-kerfið, sem gerir notandanum kleift að velja hverja aðgerð úrsins fyrir sig og stilla þær auðveldlega, fljótt og örugglega.

Rifflaði hringurinn

18 kt gull

Með því að reka eigin málmsteypu býr Rolex yfir framúrskarandi getu til að steypa hágæða 18 kt gullblöndur. Samkvæmt hlutfalli af silfri, kopar, platínu eða palladíum sem bætt er við fást mismunandi tegundir af 18 kt gulli: gult, bleikt eða hvítt. Þetta fer aðeins fram með hreinustu málmum og eru þeir skoðaðir vandlega af rannsóknarstofunni á staðnum þar sem notast er við nýjustu tækni. Þetta er gert áður en gullið er mótað og lagað þar sem sama áhersla á nákvæmni er viðhöfð. Skuldbinding Rolex við ágæti hefst við upptökin.

18 kt gull

Framboð módela

Öll Rolex úr eru samsett í höndunum þar sem áhersla er lögð á að tryggja framúrskarandi gæði. Strangir staðlar Rolex takmarka framleiðslugetu fyrirtækisins og stundum kann því eftirspurnin eftir Rolex úrum að vera meiri en framleiðslugetan.

Því kann framboð ákveðinna módela að vera takmarkað. Ný Rolex úr eru eingöngu seld hjá opinberum söluaðilum Rolex en þeir fá sendingar með reglubundnum hætti og hafa umsjón sjálfir með úthlutun og sölu úra til viðskiptavina.

Michelsen er stoltur meðlimur í alþjóðlegu neti opinberra söluaðila Rolex og getur veitt upplýsingar um framboð á Rolex úrum.

Hafðu samband

Use Enter or Space to expand or collapse sections. Use arrow keys to navigate between sections.

Skref 1 af 3: Skrifaðu skilaboð

Model Contact

Senda skilaboð: Skrifaðu skilaboð

Takk fyrir sýndan áhuga þinn á Rolex úrum. Skrifaðu skilaboðin þín og við munum senda þér svar fljótlega.

Rolex Sky-Dweller vörulínan

Halda áfram að skoða