Fara beint í efni
Skip to main content
  • Submariner Date

Rolex

Submariner Date

Oyster, 41 mm, hvítagull

RMC: M126619LB-0003

7.960.000 kr.

Watch image gallery

Watch image gallery

Viewing image 1 of 4

  • Submariner Date - Image 1

Rolex International Guarantee card in green leather holder

Specifications

Módel týpa
126619LB
Ól / keðja
Oyster, þriggja hluta gegnheilir hlekkir
Úrkassi
Oyster, 41 mm, hvítagull
Gangverk
Stöðugt, vélrænt, sjálftrekkjandi
Vatnsvörn
Vatnshelt við 300 metra / 1.000 fet
Verkgerð
3235, framleiðandi Rolex
Hringur
Hringur sem snýst í eina átt, með 60 mínútna kvörðun, rispuþolið Cerachrom innlegg úr keramik með platínuhúðaða tölustafi og kvarðanir
Hleðsluforði
U.þ.b. 70 klukkustundir
Skífa
Svört
Vottun
Superlative Chronometer (COSC + Rolex vottun eftir umgjörð)

Snúanlegur hringur í eina átt

Snúningshringur Submariner er lykilhluti úrsins. 60 mínútna kvarðanir þess gera kafaranum kleift að fylgjast á nákvæman og öruggan máta með köfunartíma sínum og stoppum vegna þrýstingsminnkunar. Cerachrom hringinleggið er framleitt af Rolex úr hörðu, tæringarþolnu keramiki og það er nánast alveg rispuhelt. Ljómandi hylki á núllmerkinu tryggir læsileika, sama hversu dimmt umhverfið er. Riffluð brún hringsins er vandlega hönnuð til að bjóða framúrskarandi grip í vatni, jafnvel með hanska.

Snúanlegur hringur í eina átt

Svört skífa

Chromalight-lýsing skífunnar er nýjung sem bætir sýnileika í myrkri, sem er nauðsynlegur eiginleiki fyrir kafara. Merki fyrir klukkustundir með einfalda lögun - þríhyrninga, hringi, rétthyrninga - og breiða klukkutíma- og mínútuvísa auðvelda skjótan og áreiðanlegan álestur sem kemur í veg fyrir hættu á ruglingi neðansjávar.

Svört skífa

18 kt hvítagull

Með því að reka eigin málmsteypu býr Rolex yfir framúrskarandi getu til að steypa hágæða 18 kt gullblöndur. Samkvæmt hlutfalli af silfri, kopar, platínu eða palladíum sem bætt er við fást mismunandi tegundir af 18 kt gulli: gult, bleikt eða hvítt. Þetta fer aðeins fram með hreinustu málmum og eru þeir skoðaðir vandlega af rannsóknarstofunni á staðnum þar sem notast er við nýjustu tækni. Þetta er gert áður en gullið er mótað og lagað þar sem sama áhersla á nákvæmni er viðhöfð. Skuldbinding Rolex við ágæti hefst við upptökin.

18 kt hvítagull

Framboð módela

Öll Rolex úr eru samsett í höndunum þar sem áhersla er lögð á að tryggja framúrskarandi gæði. Strangir staðlar Rolex takmarka framleiðslugetu fyrirtækisins og stundum kann því eftirspurnin eftir Rolex úrum að vera meiri en framleiðslugetan.

Því kann framboð ákveðinna módela að vera takmarkað. Ný Rolex úr eru eingöngu seld hjá opinberum söluaðilum Rolex en þeir fá sendingar með reglubundnum hætti og hafa umsjón sjálfir með úthlutun og sölu úra til viðskiptavina.

Michelsen er stoltur meðlimur í alþjóðlegu neti opinberra söluaðila Rolex og getur veitt upplýsingar um framboð á Rolex úrum.

Hafðu samband

Use Enter or Space to expand or collapse sections. Use arrow keys to navigate between sections.

Skref 1 af 3: Skrifaðu skilaboð

Model Contact

Senda skilaboð: Skrifaðu skilaboð

Takk fyrir sýndan áhuga þinn á Rolex úrum. Skrifaðu skilaboðin þín og við munum senda þér svar fljótlega.

Rolex Submariner vörulínan

Halda áfram að skoða