
Submariner Date
Oyster, 41 mm, Oystersteel stál og gull

Oyster Perpetual Submariner og Oyster Perpetual Submariner Date eru frumgerðir kafaraúrsins og festa í sessi hina sögulegu tengingu á milli Rolex og könnunar hafdjúpanna.
Submariner kom á markað árið 1953 og var fyrsta armbandsúrið fyrir kafara sem var vatnshelt niður að 100 metra dýpi.Submariner Date sýndi dagsetningu auk tímans og kom fyrst á markað árið 1969.Vatnsheldni beggja módelanna var seinna aukin í 300 metra. Þar sem þau eru þekkt fyrir að vera einstaklega sterkbyggð hafa þau fært sig upp úr undirdjúpunum og eru nú vinsæl úr í margvíslegum íþróttum og öðrum athöfnum.


Submariner er ætlað að hjálpa köfurum að lifa af í djúpunum og hannað til að uppfylla þeirra helstu þarfir. Úrið hefur þróast tæknilega og fengið nýja eiginleika til að bæta heildarvirkni þess.
Submariner og Submariner Date eru meðal þekktustu úranna sem hönnuð hafa verið. Þau eru með 41 mm Oyster kassa, auðþekkjanlega skífu með stórum, ljómandi klukkutímamerkjum og vísum, snúanlegan hring í eina átt og Oyster keðju.Cerachrom hringinnlegg með kvörðun úr hátækni keramíki er lykillinn að virkni úranna og er enn eitt einkenni útlits þeirra. 60 mínútna kvörðun gerir kafaranum kleift að fylgjast nákvæmlega með tímanum.

Oyster kassinn fyrir Submariner og Submariner Date er vatnsheldur niður á allt að 300 metra dýpi. Triplock trekkjarinn – með þreföldu vatnsvarnarkerfi – skrúfast þétt upp við úrkassann til að veita aukna vatnsþéttni.

Oyster keðjan er hönnuð til að vera bæði sterk og þægileg og kemur með Oysterlock öryggislás sem leggst saman og kemur í veg fyrir að hún opnist óviljandi og Rolex Glidelock-lás með lengingu sem gerir það auðvelt að stilla lengd ólarinnar án þess að nota verkfæri.
Submariner er með verkgerð 3230 og Submariner Date er með verkgerð 3235, sjálftrekkjandi vélræn gangverk hönnuð og framleidd eingöngu af Rolex.Þau bjóða upp á framúrskarandi afköst, sérstaklega hvað varðar nákvæmni, hleðsluforða, þægindi og áreiðanleika.Hleðsluforðinn í báðum úrverkunum endist í um það bil 70 klukkustundir.

Submariner úr eru með Superlative Chronometer vottun, rétt eins og öll úr frá Rolex. Þessi vottun sannar að öll úr sem eru send frá verkstæðum vörumerkisins hafa gengist undir röð prófana í rannsóknarstofum Rolex samkvæmt kröfum fyrirtækisins. Superlative Chronometer vottunin er sýnd með græna innsiglinu og henni fylgir fimm ára ábyrgð.

Submariner var búið til sérstaklega fyrir könnun hafdjúpsins og köfun.Þegar það kom fyrst frá verkstæði Rolex naut það strax vinsælda hjá mörgum helstu frumkvöðlum djúpsjávarkönnunar, sem voru beðnir um að prófa það. Einn þessara frumkvöðla var Dimitri Rebikoff, franskur verkfræðingur og köfunarljósmyndari. Í skýrslu sinni frá 1953 skrifaði Rebikoff að úrið hefði staðið sig einstaklega vel í prófum: „Við getum staðfest að þetta úr hafi ekki eingöngu staðist sérstaklega erfiðar köfunaraðstæður heldur var það einnig ómissandi tæki fyrir alla köfun með sjálfstæðum búnaði.“