Fara beint í efni
Michelsen 1909
Skip to main content
Perpetual 1908

Rolex Perpetual 1908
Klassík í sérflokki

Perpetual 1908 er fágað, sígilt og nútímalegt og fangar aldalangan ævintýraanda Rolex.

Úrið erfir útlit merkisins ásamt fjölmörgum nýjungum þess á sviði úrsmíði. Það heldur á lofti leit merkisins að yfirburðum. Þetta vandaða dæmi um úrsmíðakunnáttu Rolex, með Superlative Chronometer vottun, færir hið sígilda til framtíðarinnar.

Introduction to Rolex

1908 er tákn um dirfsku Rolex allt frá upphafi

Allt frá stofnun merkisins árið 1908 hefur Rolex fylgt grundvallarskoðun stofnandans Hans Wilsdorf um að framtíð armbandsúrsins sé óaðskiljanleg frá einstakri frammistöðu. 1908 færir saman alla helstu eiginleika sjálftrekkjandi armbandsúrs samkvæmt honum: með nákvæmri tímamælingu, vatnsheldni, sjálfvirkni, þægindum og endingu.

Perpetual 1908

Sígildur stíll í stöðugri endurnýjun

Hans Wilsdorf kom með byltingarkenndar nýjungar á tæknilegum eiginleikum armbandsúrsins en þær voru einnig ávöxturinn af skýrri fagurfræðilegri sýn hans. Útlínur kassans og hönnunin á skífu 1908 úrsins eru enduruppfinning á hinum sígilda – en þó afar nútímalega – anda upprunalegu Oyster Perpetual úranna. Hringurinn utan um kassann er fallega kúptur og rifflaður og er vitnisburður um leit að fínleika í öllum formum úrsins.

Perpetual 1908
Perpetual 1908

Rennileg hönnun sem tengir saman framtíð og fortíð

Tölustafirnir 3, 9 og 12 og litli sekúnduvísirinn við tölustafinn 6 hjá 1908 úrinu, sem fæst í 18 kt gulli eða hvítagulli ásamt 950 platínu, endurspeglar útlit Oyster Perpetual frá 1931 og gæðir það nútímaleika. Skífan er fyrirmynd glæsileika og fágunar: Tölustafir og skorur við klukkutímana úr 18 kt gulli með hreinhvítri eða djúpsvartri skífu, eða blá skífa með guilloché stöplamynstri. Skífan er varin af kúptu safírgleri og með fíngerðri mínútubraut umhverfis hana. 1908 er með ólíka vísa: mínútuvísirinn er í laginu eins og tvíeggja sverð og klukkutímavísirinn er með gataðan hring.

Perpetual 1908

Fágun og þægindi

1908 úrin eru með leðuról, fyrir utan útgáfuna úr 18 kt gulli sem er með Settimo keðju. Brúna eða svarta leðurólin úr krókódílaleðri er með sauma í svipuðum litatón og græna innri fóðrun, sem kallast á við einkennislit merkisins. Dualclasp lásinn er úr 18 kt gulli, hvítagulli eða 950 platínu og leggst þétt upp að úlnliðnum. Settimo keðjan er gerð úr 18 kt gulli og er með fíngerða hlekki sem endurkasta frá sér ljósi. Úrið er með falda Crownclasp og samræmd hönnunin minnir á keðjurnar sem voru notaðar á sumum sígildum úrum fyrri tíma.

Perpetual 1908

Gegnsæ bakhlið kassans gefur spennandi innsýn

Rolex heldur áfram að færa fram nýjungar, en þó með virðingu fyrir úrsmíðahefð sinni, með því að bjóða upp á úr með gegnsæja bakhlið sem sýnir gangverkið. Verkgerð 7140 er með útskorið sveiflandi lóð úr gulli og þremur örmum, áletrað með orðunum „Chronometer Perpetual“ og með fínstillta kúlulegu. Gangverkið er með einstakar áferðir og sérstaka Rolex Côte de Genève skreytingu, sem er vinsæl, hefðbundin úraskreyting túlkuð upp á nýtt með pússaðri rauf á milli hvers bands. Rispuþolið safírglerið er sönnun þess að fyrir Rolex er fallegt útlit gangverksins jafn mikilvægt og frammistaða þess.

Introduction to Rolex

Verkgerð 7140: frammistaða og fágun

Til að knýja 1908 hafa úrsmiðir Rolex þróað alveg nýtt sjálftrekkjandi gangverk, verkgerð 7140, sem sýnir tímann með tveimur vísum í miðri skífunni og litlum sekúnduvísi við tölustafinn 6. Sótt hefur verið um fjölda einkaleyfa fyrir þetta gangverk, sem er algjörlega þróað og framleitt innan fyrirtækisins. Nýstárleg hönnunin er með nokkrar mikilvægar nýjungar frá framleiðslunni til að tryggja einstaka frammistöðu, þar á meðal Syloxi fjöður úr sílíkoni og Chronergy akkeri úr nikkel-fosfór málmblöndu, en þessi efni þola vel sterk segulsvið. Einnig er hún með Paraflex höggdeyfa sem vernda sveifluvakann og akkerishjólið frá höggum á úrið.

Halda áfram að skoða

Showing page 1 of 1