
Sea-Dweller
Oyster, 43 mm, Oystersteel stál

Rolex bjó til Oyster Perpetual Sea-Dweller árið1967 til að uppfylla kröfur langra köfunarverkefna.
Sea-Dweller er sérstaklega hannað fyrir köfun í langan tíma. Helíum þrýstiventillinn gerir úrinu kleift að þola þrýstingsminnkun þegar farið er aftur á yfirborðið, sem er síðasti hluti djúpsjávarkönnunar.

Þegar Sea-Dweller kom fyrst á markað árið 1967 var það vatnshelt niður á 610 metra dýpi og síðan niður á 1.220 metra dýpi frá árinu 1978. Úrið sameinar alla eiginleikana fyrir úr handa nútímaköfurum.
Sea-Dweller var prófað við raunverulegar aðstæður sem hluti af Tektite verkefninu sem var unnið í samvinnu á milli NASA, bandaríska sjóhersins og ríkisstjórnar Bandaríkjanna árið 1969. Þar var úrið notað í fyrstu stóru rannsóknunum á vistarverum neðansjávar.

Á 7. áratug síðustu aldar gerði langtímaköfun köfurum kleift að kafa á miklu dýpi í langan tíma. Hún felur í sér að láta kafara vera í vistarverum undir þrýstingi til að herma eftir þrýstingnum sem þeir finna fyrir þegar þeir vinna neðansjávar. Þetta þýðir að þeir þurfa bara að fara í gegnum þrýstingsminnkun í eitt skipti við lok verkefnisins.
Þetta ferli getur skemmt úrið. Kafarar anda að sér blöndu lofttegunda sem inniheldur aðallega helíum, sem hefur einstaklega smá atóm sem komast í gegnum kassann. Þegar kafararnir snúa aftur á yfirborðið getur helíumið inni í kassanum myndað of háan innri þrýsting sem getur skemmt hann.

Til að leysa þetta vandamál kynnti Rolex Sea-Dweller til sögunnar árið 1967, kafarúr með helíum þrýstiventli. Hann er skrúfaður á kassann og samanstendur af loftþéttum sívalningi, stimpli, pakkningu og fjöður, sem virka sem öryggisloki. Þegar þrýstingurinn inni í kassanum er of hár opnast hann sjálfkrafa til að leyfa helíumatómunum að sleppa.

Chromalight lýsingin er einstök fyrir Rolex og færir Sea-Dweller framúrskarandi læsileika við allar kringumstæður. Klukkustundamerkin, vísarnir, hylkið og hringurinn eru fyllt eða húðuð með ljómandi efni sem gefur frá sér sterkan bláan ljóma í myrkri sem endist allt aö tvöfalt lengur en hefðbundin sjálflýsandi efni.

Sea-Dweller er með Triplock trekkjara. Þessi niðurskrúfaða króna var fundin upp árið 1970 og er með þrjú vatnsheldnisvæði. Hún bætir vatnsheldnina hjá 43 mm Oyster kassa Sea-Dweller úrsins. Miðkassinn er gerður úr gegnheilu Oystersteel, sem er sérstaklega tæringarþolin málmblanda.

Könnuðir og haffræðingar eins og Sylvia Earle og neðansjávarljósmyndarar eins og David Doubilet eru staðráðin í að vernda hafið og vita að það er dýrmætasta auðlind okkar. Þau bera Sea-Dweller á úlnliðnum til að endurspegla ástríðu þeirra og skuldbindingu.
Rolex hefur einnig verið í samstarfi við Comex (Compagnie Maritime d‘Expertises) frá árinu 1971. Kafarar hjá þessu franska fyrirtæki, sem sérhæfir sig í neðansjávarverkfræði, tækni og inngripum, hafa notað Sea-Dweller í nokkra áratugi.