Fara beint í efni
Michelsen 1909
Skip to main content
Lady Datejust

Rolex Lady-Datejust
Þokkafull fágun

„Sígilt úrverk hannað fyrir dömur.“ Þannig myndu sumir lýsa Oyster Perpetual Lady‑Datejust. Kannski er það rétt.

Frá því snemma á 20. öld hefur Rolex hannað og smíðað úr fyrir allar konur, með sömu yfirburðakröfum og öll önnur önnur úrverk sem halda uppi orðstír fyrirtækisins. Ef „sígilt“ þýðir að krefjast sífellt hærri staðla, ef það þýðir að halda uppi hefðum og blanda um leið saman þokka og nákvæmni og endingu, fegurð og frammistöðu … þá er Lady-Datejust svo sannarlega sígilt úrverk hannað fyrir dömur.

Introduction to Rolex

Sígilda kvenúrið frá Rolex. Með fágaðan ljóma, stíl og tæknilega frammistöðu.

Lady Datejust

Hornsteinn í sögu Rolex

Frumkvöðlakonur hafa alltaf verið hornsteinn í sögu Rolex.Allt frá upphafi vörumerkisins hafa þær veitt innblástur fyrir hönnun og þróun einstakra úrverka sem hjálpa þeim á leiðinni til viðurkenningar. Lady-Datejust hyllir konur sem þora að vísa veginn. Það endurspeglar nákvæmni og blandar saman sígildum þokka og tæknilegri frammistöðu.

Lady Datejust

Erfingi Datejust

Lady-Datejust kom fyrst út árið 1957 og býr yfir öllum eiginleikum Datejust. Þetta táknræna úr frá Rolex hefur verið samheiti fyrir stíl og tæknilega frammistöðu allt frá fyrstu útgáfu þess árið 1945. Lady-Datejust er dömuútgáfan af Datejust chronometer úrverkinu með sama þokka í minni stærð sem hentar fullkomlega fyrir grennri úlnlið.

Lady Datejust

Fjöldi útgáfa

Skífur með geislaáferð, greyptar demöntum eða úr perlumóður – Lady-Datejust býður upp á svo marga valkosti að allir geta auðveldlega fundið það sem hentar þeirra persónuleika. Lady-Datejust fæst með kúptum, riffluðum eða demantsgreyptum hring, eftir útgáfu.

Lady Datejust

Einstakt efni

Lady-Datejust fæst í Oystersteel, í 18 kt gulli, hvítagulli eða Everose gulli eða í Rolesor útgáfum sem blanda saman Oystersteel og einni af þremur gerðunum af gulli (hvítagull, gull og Everose).

Lady Datejust

28 mm Oyster úrkassi

Lady-Datejust 28 mm Oyster úrkassinn er fullkomin blanda af réttum hlutföllum, endingu og þokka. Miðkassinn er með auðþekkjanlega lögun og er gerður úr heilsteyptu, tæringarþolnu Oystersteel eða 18 kt gulli. Hann er vatnsheldur við allt að 100 metra dýpi (330 fet).

Lady Datejust

Einstakar keðjur

Eftir því hvaða útgáfa er valin fæst Lady-Datejust með Oyster keðju með hlekkjum í þremur hlutum og Oysterclasp sem leggst saman; með Jubilee keðju með hlekkjum í fimm hlutum – sköpuð árið 1945 sérstaklega fyrir Datejust – með Crownclasp; eða með President keðju með hlekkjum í þremur hlutum og Crownclasp.

Lady Datejust

Perpetual verkgerð 2236

Í Lady-Datejust er verkgerð 2236, sjálftrekkjandi vélrænt gangverk hannað og framleitt eingöngu af Rolex. Uppbygging þess gerir það framúrskarandi nákvæmt og áreiðanlegt. Verkgerð 2236 er með Syloxi spíralfjöður úr sílíkoni, með einkaleyfi og framleitt af Rolex. Syloxi spíralfjaðrirnar þola vel segulsvið og eru afar stöðugar í hitabreytingum Lögun hennar er skráð undir einkaleyfi og tryggir stöðuga virkni í hvaða stöðu sem er.

Lady Datejust

Superlative Chronometer vottun

Lady-Datejust er með Superlative Chronometer vottun, rétt eins og öll úr frá Rolex. Þessi vottun sannar að öll úr sem eru send frá verkstæðum vörumerkisins hafa gengist undir röð prófana í rannsóknarstofum Rolex samkvæmt kröfum fyrirtækisins. Superlative Chronometer vottunin er sýnd með græna innsiglinu sem fylgir öllum Rolex úrum og henni fylgir fimm ára ábyrgð.

Halda áfram að skoða

Showing page 1 of 1