Fara beint í efni
Michelsen 1909
Skip to main content
Perpetual 1908

Rolex Cosmograph Daytona
Yfirburðir endingarinnar

Oyster Perpetual Cosmograph Daytona kom fyrst á markaðinn árið 1963 og hefur fyrir löngu skipað sér sess í úrsmíðaheiminum sem táknrænt úr.

Nafn þess er tengt hinni frægu kappakstursbraut á Daytona Beach í Flórída og er ímynd sambandsins á milli Rolex og akstursíþrótta, sérstaklega frægustu þolaksturskeppnum heims. Goðsagnakennd metorð úrsins eru ekki síst vegna auðþekkjanlegrar skífunnar með hringjum í andstæðum lit. Cosmograph Daytona hefur verið í stöðugri þróun yfir árin og er áreiðanlegur og nákvæmur félagi þeirra sem velja að ryðja sér eigin braut.

Introduction to Rolex

Cosmograph Daytona er táknrænt fyrir sérþekkingu Rolex og það skarar fram úr með nákvæmni sinni og áreiðanleika.

Perpetual 1908

Goðsagnakennd hönnun

Hringur, mínútukvarði og þrír teljarar: þessi einkennandi fimm hringja hönnun er táknræn fyrir Cosmograph Daytona. Hönnun skífunnar, litasamsetningarnar og uppbygging kassans hafa verið endurhönnuð reglulega yfir árin til að staðfesta á ný fágun módelsins.

Mikilvægur hluti af auðkenni Cosmograph Daytona er hraðamælikvarðinn, sem er á hring úrsins. Með honum er hægt að mæla meðalhraða upp að 400 kílómetrum eða mílum á klukkustund, með sekúnduvísi í miðju skífunnar.

Perpetual 1908

Verkgerð 4131
Yfirburða gangverk með skeiðklukku

Cosmograph Daytona er með verkgerð 4131. Þetta gangverk með skeiðklukku er þróað út frá verkgerð 4130 og er hannað og framleitt algjörlega hjá Rolex. Það var kynnt á markaðinn árið 2023 og inniheldur margar mikilvægustu nýjungarnar í gangverkum Rolex, þar á meðal Chronergy akkeri, Paraflex höggdeyfar og kúlulega.

Perpetual 1908

Þessi verkgerð er með útskorið hreyfanlegt lóð og á brúnum er einstök Rolex Côtes de Genève skreyting – ný útfærsla á sögulegri áferð innan svissneskrar úrsmíði.

Í útgáfunni úr 950 platínu, sem auðkennist af blárri skífu, er lóðið úr gulli og er sýnilegt í gegnum gegnsæja bakhlið kassans úr safírgleri.

Perpetual 1908

Oysterflex armband
Alhliða þægindi

Cosmograph Daytona í 18 kt gulli með Cerachrom hring fæst með Oysterflex armband. Ólin er hönnuð af Rolex og með skráð einkaleyfi. Hún sameinar styrkleika málmólar og þægindi ólar úr teygjuefni. Keðjan er með Oysterlock öryggislás sem leggst saman sem kemur í veg fyrir að hún opnist óviljandi og hægt er að stilla lengdina með Rolex Glidelock-lás með lengingarkerfinu.

Perpetual 1908
Perpetual 1908

Farið út fyrir þægindarammann

Frá því að Cosmograph Daytona kom fyrst á markaðinn hefur það verið vinsælasta úrið meðal áhugamanna í akstursíþróttum. Margir þeirra nota úrið hversdagslega fyrir utan aksturbrautina, meðal annars Paul Newman, hinn víðfrægi leikari, ökuþór og frumkvöðull innan samfélagsins, Sir Jackie Stewart, táknræn persóna í Formula 1® og einn frægasti ökuþór síðustu 50 ára, Tom Kristensen, danski ökukappinn sem vann 24 Le Mans keppnir í níu skipti og setti met og Jamie Chadwirk, ungi breski ökuþórinn sem er nú fremst meðal kvenna í kappakstri eins sætis bíla.

Halda áfram að skoða

Showing page 1 of 1